Öll úrslit dagsins í enska boltanum: Liverpool kom til baka og vann Stoke Stefán Árni Pálsson skrifar 8. apríl 2017 16:00 Firmino gerði sigurmarkið fyrir Liverpool. vísir/getty
Fimm leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu klukkan 14:00 í dag og ber þar helst að nefna góðan sigur Liverpool á Stoke. Liverpool lenti 1-0 undir í leiknum undir lok fyrri hálfleiks þegar Jonathan Walters skoraði fínt mark með skalla. Staðan var 1-0 í hálfleik fyrir heimamenn en Liverpool kom vel inn í þann síðari. Tuttugu mínútum fyrir leikslok skoraði Philippe Coutinho laglegt mark inni í vítateig eftir mikið klafs innan teigs. Það var síðan Roberto Firmino sem kom gestunum 2-1 yfir aðeins tveimur mínútum síðar og þar við sat. Manchester City vann auðveldan sigur á Hull, 3-1, en Hull skoraði sjálfsmark eftir hálftíma leik og var þar að verki El Mohamady. Sergio Aguero og Fabian Deplgh bættu síðan mörkum við fyrir City. Þá vann West Ham mikilvægan sigur á Gylfa Þór Sigurðssonar og félögum í Swansea og fór leikurinn 1-0. Eina mark leiksins gerði Kouyate.Úrslit dagsins: Man. City - Hull City 3-1 Middlesbrough - Burnley 0-0 Stoke City - Liverpool 1-2 WBA - Southampton 0-1 West Ham - Swansea City 1-0 Hér að neðan fór fram bein textalýsing frá leikjum dagsins15:45 - Andrea Ranocchia minnkar muninn í 3-1 fyrir Hull gegn City 15:31 - Þetta tók ekki langan tíma. Firmino kemur Liverpool í 2-1 gegn Stoke og hefur liðið því skorað tvö mörk á mjög stuttum tíma. 15:27 - Philippe Coutinho nær að jafna metin fyrir Liverpool með laglegu skoti eftir frákast. 15:25 - Fabian Delph að koma heimamönnum í City í 3-0. 15:11 - Sergio Aguero kemur City í 2-0 í upphafi síðari hálfleiks. 14:45 - Jonathan Walters skallar boltann í netið og kemur Stoke 1-0 yfir gegn Liverpool. Rétt áður vildu leikmenn Liverpool fá dæmda vítaspyrnu en heimamenn brunuðu upp völlinn og skoruðu laglegt mark. 14:44 - Cheikhou Kouyate kemur West Ham 1-0 yfir gegn Swansea.14:34 - Ahmed El Mohamady gerir sjálfsmark og Manchester City komið í 1-0 gegn Hull14:25 - Jordy Clasie kemur Southampton í 1-0 gegn WBA.14:09 - Allir leikirnir eru farnir af stað og ekkert markið litið dagsins ljós.
Enski boltinn Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti Juventus bjargaði stigi í lokin Fótbolti Alcaraz heldur uppteknum hætti Sport Fleiri fréttir Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Sjá meira