Banki sem lánaði Trump 300 milljónir dollara í lykilhlutverki í peningaþvætti rússneskra glæpamanna Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. mars 2017 07:45 Deutsche Bank var í lykilhlutverki í umfangsmiklu peningaþvætti. vísir/Getty
Þýski bankinn Deutsche Bank sem lánaði Donald Trump 300 milljónir dollara lék lykilhlutverk í umfangsmiklu peningaþvætti sem tengist glæpastarfsemi í Rússlandi og rekja má allt til rússneskra valdhafa, að því er greint er frá á vef Guardian. Bankinn er einn af tólf vestrænum fjármálastofnunum sem þvoðu að minnsta kosti 20 milljarða bandaríkjadala sem voru upprunnir frá glæpasamtökum og glæpamönnum í Rússlandi. Peningaþvættið var þekkt undir nafninu „Alþjóðaþvottahúsið“ og var í gangi á árunum 2010 til 2014. Lögregluyfirvöld víða um heim rannsaka nú hvernig hópur af vel tengdum Rússum gat notað fyrirtæki sem skráð eru í Bretlandi til að þvo milljarða af reiðufé en fyrirtækin þóttust lána hvort öðru peninga og voru lánaskjölin undirrituð af forsvarsmönnum rússneskra fyrirtækja.Frá Moldavíu til Lettlands og þaðan út um allan heim Fyrirtækin gátu síðan ekki borgað af lánunum og fóru yfirvöld í Moldavíu þá í aðgerðir gegn þeim sem gerði rússneskum bönkum kleift að flytja miklar peningarupphæðir inn til landsins. Þaðan fóru peningarnir síðan til Lettlands með bankanum Trasta Komercbanka en Deutsche Bank var einn af samstarfsbönkum Trasta, það er að segja Deutsche veitti þeim viðskiptavinum Trasta sem ekki voru rússneskir þjónustu sem fór að mestu fram í dollurum. Þessi þjónusta var svo notuð til að flytja peninga frá Lettlandi á bankareikninga um allan heim. Á tímabilinu sem peningaþvættið stóð sem hæst hættu margir bankar af Wall Street störfum í Lettlands vegna gruns um að landið væri notaði í peningaþvætti, sérstaklega af Rússum.Tengsl við Rússland viðkvæm fyrir Deutsche Árið 2014 voru það svo að aðeins tvær vestrænars lánastofnanir, það er Deutsche Bank og þýski bankinn Commerzbank, tóku við dollurum sem áttu uppruna sinn að rekja til Lettlands. Deutsche hætti svo að eiga viðskipti við Tresta í september árið 2015 og sex mánuðum var Tresta lokað af yfirvöldum í Lettlandi. Tengsl við Rússland eru sérstaklega viðkvæm fyrir Deutsche Bank, ekki síst í ljósi þess að í febrúar var greint frá því að bankinn hefði leynilega farið yfir öll lán sem hann hafði veitt Trump Bandaríkjaforseta á sínum tíma til að ganga úr skugga um hvort að þar væri að finna einhver tengsl við Rússa. Deutsche hefur ekkert viljað gefa upp um hvað kom út úr þeirri innanhússrannsókn en Trump skuldar bankanum 300 milljónir bandaríkjadala eins og áður segir. Samkvæmt heimildum Guardian fundust hins vegar engin tengsl milli lánanna til Trump og Rússlands.
Mest lesið Vænta þess að eigendur hússins leysi málið Viðskipti innlent Milla ráðin rekstrarstjóri hjá Ólafi Darra og félögum Viðskipti innlent „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Atvinnulíf Leggja til lagabreytingu sem leysir af penna og pappír Viðskipti innlent Fékk milljón til baka vegna bílaleigubíls sem varð fyrir eldingu Neytendur Um fimmtíu verið sektuð fyrir að greiða ekki rétt fargjald Neytendur „Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt“ Atvinnulíf Fólk muni eiga meira eftir í buddunni um mánaðamótin Neytendur Kolefnisförgunarstöð geti skapað Ölfusi störf og tekjur Viðskipti innlent 37,5 milljarðar í hagnað og nítján í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreind fyrir klink veldur Bandaríkjamönnum hausverk Kínversk kúvending leiddi til hruns vestanhafs Enn deila Musk og Altman MrBeast gerir tilboð í TikTok Eftirmaður Norman yfir LIV-mótaröðinni fundinn Höfða mál gegn Musk vegna kaupanna á Twitter Vilja banna farþegum að fá sér þriðja drykkinn á flugvellinum Meta birtir óumbeðnar gervigreindarmyndir af notendum Instagram Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Sjá meira