Yfirlýsing EBU: Ákvörðun úkraínskra yfirvalda mikil vonbrigði Atli Ísleifsson skrifar 22. mars 2017 15:20 Hin 27 ára Julia Samoilova hefur viðurkennt að hafa sungið á Krímskaga árið 2015. Vísir/AFP
Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva EBU segir ákvörðun úkraínskra yfirvalda um að banna komu rússnesku söngkonunnar Juliu Samoylova til Úkraínu vera mikil vonbrigði. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá EBU. Úkraínska öryggislögreglan hefur bannað komu rússneska keppandans vegna „ólöglegrar heimsóknar“ hennar til Krímskaga þar sem hún kom fram árið 2015. Rússland innlimaði Krímskaga ári fyrr. Í yfirlýsingu frá EBU segir að nauðsynlegt sé að virða lög og reglur þess ríkis sem hýsir keppnina hverju sinni, en hins vegar sé ákvörðunin mikil vonbrigði þar sem hún gangi gegn anda og gildum keppninnar.Sjá einnig:Eurovision-stjarnan Dima Bilan á Íslandi „Við munum halda áfram samtali okkar við úkraínsk yfirvöld með það að markmiði að tryggja að allir listamenn geti komið fram á 62. Eurovision-keppninni í Kíev í maí,“ segir í yfirlýsingunni.140 listamenn á svörtum listaHin 27 ára Samoilova hefur viðurkennt að hafa sungið á Krímskaga árið 2015, en að minnsta kosti 140 rússneskir listamenn eru nú á svörtum lista SBU. Stjórnvöld í Úkraínu og Rússlandi hafa eldað grátt silfur á síðustu árum vegna deilna um landsvæði í austurhluta Úkraínu. Úkraína vann óvænt Eurovision í fyrra með flutningi söngkonunnar Jamala á laginu 1944. Lagið fjallar um fjöldafólksflutninga Josefs Stalíns á Tatörum frá Krímstaga á tímum síðari heimsstyrjaldar.
Eurovision Tengdar fréttir Eurovision: Úkraínumenn banna þátttöku rússnesku söngkonunnar Ástæðan er sögð að Julia Samoilova hafi komið fram á Krímskaga árið 2015, en Rússland innlimaði skagann ári fyrr. 22. mars 2017 13:32 Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Fleiri fréttir Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Sjá meira
Eurovision: Úkraínumenn banna þátttöku rússnesku söngkonunnar Ástæðan er sögð að Julia Samoilova hafi komið fram á Krímskaga árið 2015, en Rússland innlimaði skagann ári fyrr. 22. mars 2017 13:32