Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Haukar 40-23 | Eyjamenn slátruðu Haukum Gabríel Sighvatsson í Vestmannaeyjum skrifar 23. mars 2017 21:00 Kári Kristján og félagar voru í stuði í kvöld. vísir/anton
ÍBV hafði hreint ótrúlega yfirburði í toppslagnum gegn Haukum í kvöld og hreinlega niðurlægði Haukana er þeir tóku af þeim toppsætið í Olís-deildinni. Fyrir leikinn ríkti mikil spenna en sigurvegarinn úr þessum leik átti eftir að hreppa fyrst sætið sem sigurlaun. Tæpt var að Haukar myndu komast til Eyja vegna erfiðleika í samgöngum en þeir höfðu það þó og mætti halda að ferðalagið hafi slegið þá eitthvað út af laginu, því þeir voru eingöngu mættir til slátrunar. Þetta byrjaði með látum þegar leikmenn heimamanna gengu inn á völlinn í ljósaflóði, á nýjum dúk sem var lagður á völlinn fyrir síðasta leik liðsins. Það sá þó enginn fyrir því sem átti eftir að gerast í leiknum sjálfum. Eyjaliðið tók meistaralið Hauka og niðurlægði þá hreinlega. Á köflum mátti bara sjá eitt lið á vellinum og andleysi Hauka var algert. Þegar korter var liðið af leiknum mátti þegar sjá yfirburði ÍBV. Þá var staðan 9-4 og Stephen Nielsen, sem átti mögulega besta leik sinn á ferlinum, var þá búinn að verja 10 bolta. Eyjamenn litu aldrei til baka eftir það. Í seinni hálfleik settu þeir í fluggír og viðureignin var í raun úti löngu áður en flautað var til leiksloka. Það ætlaði allt að verða vitlaust á 58. mínútu leiksins en þá skoraði Ágúst Emil Grétarsson mark nr. 40 fyrir ÍBV í þessum leik! Þá voru þeir með næstum tvöfalt fleiri mörk en Haukar, svo miklir voru yfirburðirnir. Báðir markmenn ÍBV voru stórkostlegir í leiknum. Stephen Nielsen varði í heild 26 bolta og var með 60 prósent vörslu! Hann spilaði ekki einu sinni allan leikinn en hefði hann spilað lengur hefði hann án efa farið upp í 30 bolta. Kolbeinn Aron tók við keflinu þegar um korter lifði leiks og afrekaði það að vera með 57% vörslu. Theodór Sigurbjörnsson bætti við markaskorun sína og setti 13 mörk í kvöld. Allir leikmenn ÍBV áttu frábæran leik, þar sem öflugur varnarleikur var lykillinn að sigrinum. Haukar þurfa því að skilja toppsætið eftir í Eyjum og fara heim með risatap á bakinu.Gunnar: Leikmenn þola ekki mótlæti Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, sagðist vera miður sín eftir leik kvöldsins. „Við urðum okkur bara til skammar í kvöld, það verður bara að segjast alveg eins og er. Við lendum í mótlæti í byrjun, við sköpum okkur fullt af færum sem Stephen (Nielsen) er að taka og við þetta brotnum við og bökkum undan. Það var vandræðalegt að horfa á þetta á köflum,“ segir Gunnar. „Það var erfitt að horfa á menn skjóta yfir eða framhjá auðu marki 5-6 sinnum og 10 færi hjá hornamönnum okkar, það var mjög erfitt. Það er engin afsökun hjá okkur, svona frammistaða er bara ekki boðleg.“ En var einhver pressa á þeirra mönnum vitandi að toppsætið væri í húfi? „Við vissum alltaf að við eigum eftir að spila við þrjú efstu liðin í deildinni og mótið er allt eftir hjá okkur og við vorum ekkert endilega bara að hugsa um það. Við vildum bara „match-a“ okkur við ÍBV fyrir úrslitakeppnina, sjá hvar við stöndum og sáum að það var mikill munur á liðunum og það er áhyggjuefni.“ sagði Gunnar. „Það lið sem verður Íslandsmeistari, það er að fara að keppa á móti ÍBV, þeir eru að spila vel og eru í toppstandi,“ Gunnar var virkilega ósáttur við karakterleysi sinna manna í kvöld en þeir voru aldrei líklegir til þess að komast aftur inn í leikinn. „Leikmenn urðu sjálfum sér mest fyrir vonbrigðum. Aðalmálið er að þeir þola ekki mótlæti. Í fyrra komum við hingað tvisvar í úrslitakeppninni og unnum í bæði skiptin, en núna við fyrsta mótlæti pökkuðu menn saman og bökkuðu út úr þessu. Það var svolítið karkaterleysi líka að koma ekki til baka þegar á móti blæs.“ „Við þurfum að læra af þessu og það er ljóst að við þurfum að vinna vel og nýta tímann vel fram að úrslitakeppninni. Þetta er bara ekki boðlegt eins og þetta var í dag.“ sagði Gunnar að lokum.Arnar: Einstakt hvernig við höfum þetta í Eyjum Arnar Pétursson, þjálfari ÍBV. var hæstánægður með úrslit kvöldsins. „Ég get ekki verið neitt annað, við spiluðum virkilega vel í 60 mínútur. Við höldum áfram að taka tröppurnar í okkar leik eins og við höfum lengi stefnt að,“ sagði Arnar. „Við vorum bara mjög góðir í dag og að sama skapi áttu Haukar alls ekki sinn besta leik og í raun ábyggilega þeirra versta frammistaða í vetur. Ég þekki mína menn vel í Haukum og veit að þetta virkar sem olía á þá, þeir rífa sig upp úr þessu og koma gríðarlega sterkir til baka.“ Stephen Nielsen átti magnaðan leik og var með 26 varða bolta í enda dagsins. „Stephen er góður markmaður og vörnin var hrikalega góð í dag, þetta helst allt í hendur. En það er enginn spurning að Stephen er virkilega góður markmaður.“ Stemningin var sömuleiðis ótrúleg og telur Arnar þetta vera einsdæmi. „Þetta er einstakt hvernig við höfum þetta í Eyjum, strákarnir og við allir sem störfum í kringum þetta höfðum ótrúlega gaman að þessu og lifum í raun og veru fyrir það.“ „Það er hellingur eftir, menn eru ennþá að bæta sig og hugsa um úrslitakeppnina. Við eigum tröppur eftir þó við höfum vissulega verið góðir í dag og það skiptir miklu máli að koma til baka eftir svona leik. Þetta var á margan hátt nánast gallalaus frammistaða og við þurfum að sýna úr hverju við erum gerðir og halda áfram að bæta okkur, annars verður ekki þessi gleði áfram,“ sagði Arnar. Að lokum var Kári Kristján Kristjánsson kominn á miðjuna og Agnar Smári Jónsson búinn að taka hans stöðu sem kom svolítið skringilega fyrir sjónir. „Það var algjört bull, Kári Kristján átti ekkert að vera á miðjunni en honum finnst þetta æðislega gaman. Hann hefði helst viljað vera leisktjórnandi í ameríska fótboltanum, hann stýrir þessu algjörlega sjálfur, ég tók ekki þessa ákvörðun.“
Olís-deild karla Mest lesið Leikhlé Dags vakti athygli: „Til fjandans með þá alla“ Handbolti Dagur heldur áfram: „Fannst ég endurfæddur“ Handbolti Snorri um áhyggjuefni: „Hægt að færa rök fyrir því að án hans værum við í veseni“ Handbolti Glugginn lokast: Ensku meistararnir fá fjórða manninn Enski boltinn Björn sagður rekinn vegna utanfarar í stórafmæli mömmu Íslenski boltinn Ósáttur Haaland eldri skýtur á Arsenal Enski boltinn Pabbi Doncic: „Luka á þetta ekki skilið“ Körfubolti Stálust til að vera tólf á vellinum: „Algjört hneyksli“ Fótbolti Gidsel bætti 30 ára gamalt met sem sett var á Íslandi Handbolti Finnst umræðan skrýtin: „Ódýr þvæla“ Handbolti Fleiri fréttir Forsetinn beinskeyttur aðspurður um framtíð Alfreðs í starfi Finnst umræðan skrýtin: „Ódýr þvæla“ Dagur heldur áfram: „Fannst ég endurfæddur“ Snorri um áhyggjuefni: „Hægt að færa rök fyrir því að án hans værum við í veseni“ Leikhlé Dags vakti athygli: „Til fjandans með þá alla“ Gidsel bætti 30 ára gamalt met sem sett var á Íslandi Uppgjörið: Króatía - Danmörk 26-32 | Danir heimsmeistarar fjórða sinn í röð Frakkar tryggðu sér bronsið Gidsel hefur búið til meira en hundrað mörk á þessu HM Danska landsliðið hefur ekki tapað leik á HM í átta ár Snorri Steinn um Gunna Magg málið: „Það er kjánaskapur að halda því fram“ Snorri Steinn heldur með Degi: „Ég vona innilega að hann vinni“ FH fær markahæsta Selfyssing sögunnar Sigurganga Metzingen stöðvuð í Íslendingaslag Dana markahæst í tíunda sigrinum í röð Haukakonur færðu Eyjastúlkum níunda tapið í röð Uppgjör og viðtöl: Grótta - ÍR 24-25 | ÍR vann í dramatískum leik Snorri Steinn um ummæli Gísla: „Auðvitað ertu vonsvikinn“ Loksins brosti Dagur Sigurðsson Snorri Steinn hefur ekki getað horft á leikina á HM: „Það bara svíður“ Farmiði tryggður í fjórða úrslitaleikinn í röð Valskonur skoruðu aftur fjörutíu mörk Mundi loforðið til kennarans Segir Portúgala komna til að vera meðal þeirra bestu í handboltanum Dagur gæti gert það sem enginn þjálfari hefur afrekað í handboltasögunni Anton fær liðið sem tapar varla leik: „Hollt fyrir þær að fá eitthvað nýtt og ferskt“ Hreiðar Levý um skrif Víðis: Að líkja þessu við landráð er pistlahöfundi til skammar „Ég gæti ekki verið ánægðari“ Magnaðar móttökur fyrir utan höllina kveiktu í strákunum hans Dags Dagur og lærisveinar hans í úrslit Sjá meira