Strákarnir glutruðu niður tveggja marka forskoti í Georgíu Kristinn Páll Teitsson skrifar 25. mars 2017 12:00 Alfons, hér í leik gegn KR síðasta sumar, skoraði eitt marka íslenska liðsins. vísir/stefán
Íslenska landsliðið skipað leikmönnum undir 21 árs aldri glutraði niður tveggja marka forskoti og þurfti að sætta sig við 4-4 jafntefli gegn Georgíu ytra í dag en þetta var seinni æfingarleikur liðanna í þessari viku. Heimamenn unnu 3-1 sigur á Mikheil Meskhi leikvanginum í höfuðborg Georgíu, Tbilsi, fyrr í vikunni en strákarnir komu ákafir til leiks og komust snemma yfir.Sjá einnig:Strákarnir töpuðu í Georgíu Var þar að verki Arnór Gauti Ragnarsson á fimmtándu mínútu en heimamenn voru ekki lengi að svara og jöfnuðu tveimur mínútum síðar. Arnór Gauti bætti við öðru marki Íslands nokkrum mínútum síðar og kom Íslandi aftur yfir en ekki leið á löngu þar til Georgíumenn jöfnuðu á ný og var staðan jöfn í hálfleik. Alfons Sampsted kom Íslandi yfir á nýjan leik á 51. mínútu og korteri síðar var Axel Andrésson búinn að bæta við marki og var staðan afar góð fyrir íslenska liðið. Georgíumenn neituðu að gefast upp og minnkuðu muninn á 89. mínútu og settu um leið meiri pressu á íslenska liðið sem leiddi til þess að heimamenn jöfnuðu á 95. mínútu. Svekkjandi jafntefli staðreynd en liðið leikur einn æfingarleik til viðbótar gegn Sádi-Arabíu á þriðjudaginn sem verður loka æfingarleikur liðsins áður en undankeppni fyrir EM 2019 hefst.
Íslenski boltinn Tengdar fréttir Strákarnir töpuðu í Georgíu Íslenska U-21 árs landsliðið varð að sætta sig við tapa, 3-1, gegn Georgíu ytra í dag. 22. mars 2017 17:00 Mest lesið Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Fleiri fréttir Jamie Vardy mættur til Burnley Diljá Ýr bikarmeistari með Brann Valencia - Barcelona | Hörkuleikur á Mestalla FH - Þór/KA | Kemst FH aftur á toppinn? Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn kíkja í Garðabæinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Hólmbert bjargaði stigi Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Sjá meira
Strákarnir töpuðu í Georgíu Íslenska U-21 árs landsliðið varð að sætta sig við tapa, 3-1, gegn Georgíu ytra í dag. 22. mars 2017 17:00