Ólafía Þórunn byrjar að spila klukkan 19.23 í kvöld | Í 46. sæti eftir fyrsta daginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. mars 2017 15:15 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Vísir/Vilhelm
Það er spennandi dagur framundan hjá Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur en í kvöld spilar hún sinn annan hring á Bank of Hope Founders meistaramótinu í Phoenix er mótið er hluti af LPGA mótaröðinni. Ólafía Þórunn spilaði frábærlega á fyrsta hringnum í gær, náði meðal annars einum erni og endaði á því að leika á 69 höggum eða þremur höggum undir pari. Þessi spilamennska Ólafíu Þórunnar skilaði henni upp í 46. sæti en hún þarf samt að halda vel á kylfunni í dag ætli hún að ná niðurskurðinum sem er núna áætlaður við tvö högg undir par eins og staðan er núna. Ólafía Þórunn hefur leik klukkan 12.23 að staðartíma eða klukkan 19:23 að íslenskum tíma. Það verður fylgst með henni í beinni á Vísi og klukkan 22.00 hefst síðan útsending frá öðrum degi Bank of Hope Founders meistaramótsins á Golfstöðinni. Íslandsmeistarinn er annars í sannkölluðum „stjörnuráshóp“ fyrstu tvo keppnisdagana Þar leikur atvinnukylfingurinn úr GR með Cheyenne Woods og Michelle Wie en þær eru báðar frá Bandaríkjunum. Michelle Wie lék á sjö höggum undir pari og var í hóp efstu kvenna eftir fyrsta daginn.
Golf Tengdar fréttir Frábær endir á góðum degi hjá Ólafíu í Phoenix Ólafía Þórunn Kristinsdóttir kláraði fyrsta hringinn á Bank of Hope Founders meistaramótinu í golfi í Phoenix á þremur höggum undir pari. 16. mars 2017 19:15 Fyrsti örninn hjá Ólafíu Þórunni á LPGA-mótaröðinni Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er að byrja vel á Bank of Hope Founders meistaramótinu í golfi sem fer fram í Phoenix en þetta er þriðja mótið hennar á LPGA mótaröðinni. 16. mars 2017 16:46 Ólafía byrjar í dag: Í fyrsta sinn með atvinnukylfubera Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er komin með stóra umgjörð í kringum sig en er enn að læra að leyfa öðrum að vinna fyrir sig. 16. mars 2017 07:00 Ólafía Þórunn fékk hláturskast í miðju sjónvarpsviðtali | Myndband Atvinnukylfingurinn okkar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur ekki aðeins vakið athygli fyrir frábæra frammistöðu á golfvöllum heimsins heldur heillar hún alla með einlægni sinni og hógværð í öllum viðtölum. 15. mars 2017 20:30 Ólafía Þórunn og Valdís Þóra eiga báðar möguleika á að keppa á ÓL í Tokýó Ísland hefur aldrei átt kylfing á Ólympíuleikum en það gæti breyst haldi íslensku stelpurnar áfram að standa sig svona vel á atvinnumannamótaröðunum. 13. mars 2017 17:12 Ólafía í sannkölluðum stjörnuráshóp Hann er ekki amalegur félagsskapurinn sem Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fær fyrstu tvo dagana á Bank of Hope Founders meistaramótinu en mótið er liður í LPGA-mótaröðinni. 15. mars 2017 09:26 Mest lesið Brenndi á sér höndina áður en hann kýldi í borðið Sport Moyes ældi alla leiðina til Eyja Enski boltinn Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Fótbolti Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Fótbolti Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Fótbolti Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Handbolti Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Enski boltinn Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Enski boltinn Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Enski boltinn Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Körfubolti Fleiri fréttir Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Ástand í Noregi: Hátt upp í fimm þúsund kylfingar án klúbbs Bananahýði gerði Rory McIlroy erfitt fyrir Dáður en umdeildur kylfingur látinn Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Sjá meira
Frábær endir á góðum degi hjá Ólafíu í Phoenix Ólafía Þórunn Kristinsdóttir kláraði fyrsta hringinn á Bank of Hope Founders meistaramótinu í golfi í Phoenix á þremur höggum undir pari. 16. mars 2017 19:15
Fyrsti örninn hjá Ólafíu Þórunni á LPGA-mótaröðinni Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er að byrja vel á Bank of Hope Founders meistaramótinu í golfi sem fer fram í Phoenix en þetta er þriðja mótið hennar á LPGA mótaröðinni. 16. mars 2017 16:46
Ólafía byrjar í dag: Í fyrsta sinn með atvinnukylfubera Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er komin með stóra umgjörð í kringum sig en er enn að læra að leyfa öðrum að vinna fyrir sig. 16. mars 2017 07:00
Ólafía Þórunn fékk hláturskast í miðju sjónvarpsviðtali | Myndband Atvinnukylfingurinn okkar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur ekki aðeins vakið athygli fyrir frábæra frammistöðu á golfvöllum heimsins heldur heillar hún alla með einlægni sinni og hógværð í öllum viðtölum. 15. mars 2017 20:30
Ólafía Þórunn og Valdís Þóra eiga báðar möguleika á að keppa á ÓL í Tokýó Ísland hefur aldrei átt kylfing á Ólympíuleikum en það gæti breyst haldi íslensku stelpurnar áfram að standa sig svona vel á atvinnumannamótaröðunum. 13. mars 2017 17:12
Ólafía í sannkölluðum stjörnuráshóp Hann er ekki amalegur félagsskapurinn sem Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fær fyrstu tvo dagana á Bank of Hope Founders meistaramótinu en mótið er liður í LPGA-mótaröðinni. 15. mars 2017 09:26