Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fram 28-27 | Stjarnan vann fallslaginn Guðmundur Marinó Ingvarsson í Mýrinni skrifar 9. mars 2017 21:30 Einar Jónsson, þjálfari Stjörnunnar, mætir sínu gamla félagi í kvöld. vísir/ernir
Stjarnan lagði Fram 28-27 á heimavelli í 22. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Jafnt var í hálfleik 14-14. Fram skoraði tvö fyrstu mörk leiksins og var það í eina skiptið í fyrri hálfleik sem það munaði meira en einu marki á liðunum í hálfleiknum. Markverðir Fram vörðu aðeins tvö skot allan fyrri hálfleikinn og því með ólíkindum að Stjarnan skildi ekki hafa verið yfir í hálfleik. Það skýrist að einhverju leiti af því að Stjarnan var 12 mínútur utan vallar í fyrri hálfleik og þar af sá Brynjar Jökull Guðmundsson rautt vegna þriggja brottvísana. Það hjálpaði markvörðum Fram ekki að liðið lék framliggjandi varnarleik sem lauk yfirleitt með því að Stjarnan fékk dauðafæri eða liðið tapaði boltanum. Fram náði sjö fleiri skotum í átt að marki í fyrri hálfleik. Stjarnan byrjaði mun betur í seinni hálfleik og náði fjögurra marka forystu. Liðið virtist hafa öll völd á leiknum en það skal aldrei afskrifa Fram. Fram átti í miklum vandræðum með að skora en vann forystu Stjörnunnar upp með góðum varnarleik og upp frá því var leikurinn jafn og spennandi allt til loka. Fram náði að minnka muninn í eitt mark þegar rétt mínúta var til leiksloka og vinna boltann í kjölfarið. Guðmundur Helgi Pálsson þjálfari liðsins tók leikhlé og strax eftir það fékk Valdimar Sigurðsson boltann frá Arnari Birki Hálfdánarsyni dauðafrír á línunni en slakir dómarar leiksins Ramunas Morkunas og Þorleifur Árni Björnsson dæmdu aukakast og rændu Fram dauðafæri. Fram náði ekki að skapa sér annað færi og aukakast liðsins eftir að leiktímanum lauk fór í varnarvegginn og framhjá. Með sigrinum lyfti Stjarnan sér upp fyrir Selfoss í 6. sæti með 19 stig. Fram er áfram í næst neðsta sæti með 15 stig. Einar: Ansi margir fjögurra stiga leikir í þessari deild„Þetta voru mjög kærkomin tvö stig. Þetta endaði okkar megin og er ég þakklátur fyrir það,“ sagði Einar Jónsson þjálfari Stjörnunnar eftir sigurinn á Fram í kvöld. „Það eru ansi margir fjögurra stiga leikir í þessari deild og þetta var einn af þeim. Nú erum við komnir eitthvað fyrir ofan Framarana en við þurfum að halda áfram.“ Það var mikið undir í leiknum og það sást á honum. Það var mikil spenna allan leikinn og leikmenn tilbúnir að selja sig dýrt. „Mér fannst við vera komnir með góða stjórn á leiknum í seinni hálfleik fjórum mörkum yfir og litum vel út. Vörnin var að smella og Bubbi (Sveinbjörn Pétursson) góður og við fengum mikið af góðum færum sóknarlega. „Svo kemur kafli þar sem við allir dettum úr sambandi og fáum fjögur mörk á okkur í röð á tveimur mínútum eða eitthvað. Þá var þetta leikur en sem betur fer vorum við með frumkvæðið. Ég held að það hafi hjálpað okkur í lokin,“ sagði Einar. Framarar voru býsna ósáttir í lokin þegar þeim fannst þeir rændir dauðafæri af dómurum leiksins. Einar skildi gremju þeirra en gat bent á annað atvik skömmu áður sem hans lið átti að fá. „Þeir dæma aukakast en við áttum að fá víti í síðustu sókninni okkar. Hann varði boltann meter inni í teig. Það er alltaf hægt að tína svona til. Ef við ætlum í þennan leik þá verð ég sennilega í viðtali langt fram eftir kvöldi en ég skil að þeir séu svekktir.“ Leikmenn Stjörnunnar voru sex sinnum reknir af leikvelli í fyrri hálfleik en áttu betur með að hanga inni á vellinum í seinni hálfleik. „Við vorum fastir og taugarnar voru þandar og við aðeins hærra uppi. En maður veit aldrei hver línan hjá þessum dómurum er. Stundum erum við teknir og lamdir sundur og saman og þá þarf maður að hífa sig upp. „Við erum komnir á það að það er hærra að pumpa sig niður heldur en að þurfa að gíra sig upp í slagsmál. Við erum klárir í hvað sem er og ég held að við höfum aðlagast línu dómaranna vel í seinni hálfleik. Það var kannski einn þáttur í því að ná að landa sigri í kvöld,“ sagði Einar að lokum. Guðmundur: Við gefumst aldrei uppGuðmundur Helgi Pálsson þjálfari Fram var að vonum svekktur eftir tapið gegn Stjörnunni í kvöld og ekki síst að liðið hans var rænt dauðafæri til að jafna leikinn í síðustu sókn leiksins. „Jú, algjörlega,“ sagði Guðmundur aðspurður hvort Framarar hafi verið rændir dauðafærinu. „Það á að leyfa mönnum að klára það sem þeir eru byrjaðir að gera. Það var ekki bara þetta atriði það var fullt af atriðum í leiknum. „Ég tjái mig yfirleitt ekki um dómara. Þeir skoða þetta sjálfir og sjá hvað þeir geta gert betur og vita hvað þeir geta gert betur. „Ég hugsa bara um mína menn. Við vorum ekki nógu góðir í kvöld. Okkur vantaði ákveðni. Við spiluðum vörn í um það bil korter og þá komumst við aftur inn í leikinn. Hitt var ekki nógu gott. „Þegar vörnin er ekki í lagi þá er markvarslan ekki í lag. Auðvitað hefði maður viljað fá fleiri bolta varða en vörnin er fyrst og fremst það sem klikkaði. „Við skorum alltaf í kringum 30 mörk en varnarleikurinn þarf að vera betri,“ sagði Guðmundur. Fram átti í vandræðum með að skora í byrjun seinni hálfleiks og lenti fjórum mörkum undir en það skal enginn afskrifa Fram. „Við gefumst aldrei upp. Það er mottó. Við gefumst heldur ekkert upp núna. Það eru fimm leikir eftir og eins og þetta er búið að vera í vetur þá geta allir unnið alla og á góðum degi getum við unnið alla. Við höldum bara áfram,“ sagði Guðmundur.
Olís-deild karla Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira