Frá því að æskuvinirnir Guðjón Geir Geirsson og Róbert Elmarsson ákváðu að setja á fót eigin tískulínu fyrir stráka árið 2014 hefur margt gerst í lífi þeirra.

Guðjón getur ekki neitað því að þegar heimsfrægar stjörnur sjáist í Inklaw-fötum frá Íslandi veki það mikla athygli á hönnuninni.
Tveir félagar Guðjóns og Róberts hafa bæst við í reksturinn eftir stofnunina, Anton Birkir Sigfússon í framkvæmdastjórn og Christopher Cannon í framleiðslu- og hönnunarteymi.
Guðjón segir að þeir séu nú loks að sjá afrakstur brjálaðrar vinnu og geti lifað af starfinu.

Guðjón segir að vinnudagarnir séu langir hjá þeim félögum og oft er unnið fram á nótt.
„Núna erum við á fullu við að gera okkar fyrstu alvöru vörulínu sem verður frumsýnd á RFF og ég get lofað því að þar verður margt áhugavert.
Við höfum eiginlega verið nær eingöngu með svartan og hvítan lit en ætlum að hafa aðeins bjartara yfir línunni. Við erum rosalega stoltir af því að fá þetta tækifæri og munum leggja okkur alla fram.
Á svona sýningu eins og RFF eru mörg tækifæri og við ætlum að koma með „sprengju“, þetta verður alvöru,“ segir Guðjón.

„Við erum búnir að átta okkur á því hvað viðskiptavinir okkar vilja og munum sýna allt okkur besta,“ segir hann.
„Viðskiptavinirnir eru flestir á aldrinum 13-30 ára. Hins vegar höfum við einnig séð þá eldri, allt upp í fimmtugt,“ segir Guðjón.
„Við fáum oft spurningar um hvort við ætlum að hanna dömulínu og kannski hugum við að því í framtíðinni. Það eru hins vegar margar stelpur sem vilja ganga í strákafötum og kaupa fötin okkar. Kærastan mín gengur til dæmis í fötum frá Inklaw enda er margt af þessu unisex. Strax að loknu RFF munum við verða með nýju línuna í vefversluninni okkar,“ segir Guðjón.
Þeir félagar fá oft fyrirspurnir frá umboðsmönnum þekktra tónlistarmanna víða um heim.
„Ég verð að viðurkenna að þegar stórstjörnur kaupa fötin okkar er mikil gleði í vinnunni og við fögnum því,“ segir hann. „Þessi vinna er það besta sem ég hef gert í lífinu. Ef maður hefur trú á verkefninu þá gengur það upp.“
