„Ég tók hressilega U-beygju þegar ég fór í hárgreiðsluna en ég byrjaði á að taka grunndeild málmiðna í Verkmenntaskóla Akureyrar. Eftir hana ætlaði ég í gullsmíði en komst ekki að og tók mér þá frí frá skóla í eitt ár. Ég hafði alltaf haft áhuga á hárgreiðslu en þegar farið var að ýta á mig að læra þá iðn var ég samt ekkert alveg á því, þurfti að eiga við smá fordóma hjá sjálfum mér út af einsleitri umræðunni um að allir karlmenn í hárgreiðsluiðn séu hommar. Það er auðvitað bara kjaftæði,“ segir Pálmar létt.
Hann sér ekki eftir þeirri U-beygju enda hlaut hann viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi hjá Iðnaðarmannafélaginu í Reykjavík um liðna helgi. Hann hafi sannarlega fundið sína hillu á Rakarastofu Akureyrar þar sem hann klippir karla og snyrtir skegg. Það sé alls ekki einhæft starf að klippa karla þó flestir þeirra vilji tiltölulega einfalda klippingu.

„Skeggjaðir karlmenn hugsa mjög mikið um skeggið á sér og er alls ekki sama hvernig það er snyrt. Þegar stelpurnar eru að safna hári má varla taka einn sentimetra af því, þá er það „of mikið“. Þessu er alveg eins með karlana, þeim finnst einn sentimetri allt of mikið þegar þeir eru að safna skeggi og hafa miklar skoðanir á hvernig á að gera þetta,“ segir Pálmar.
„En það verður að snyrta skegg, annars verður það ekki fallegt. Auðvitað spá margir strákar mikið í hártísku og ungir strákar fylgjast vel með því hvað til dæmis Ronaldo gerir við hárið á sér. Eins og ég á þeirra aldri fylgdist með hárinu á David Beckham. Ég hafði alltaf skoðanir á því hvernig hárið á mér átti að vera. Maður var að setja í sig strípur og var alltaf með gel í hárinu. Beckham er reyndar enn þá leiðandi í hártískunni í dag.“
Hefurðu gefið gullsmíðina upp á bátinn?
„Ég bý að gullsmíðaáfanganum sem kenndur var í málmiðninni á sínum tíma. Ég er búinn að koma mér upp aðstöðu heima hjá mér og sinni þessu sem áhugamáli. Enda á maður víst aldrei að læra áhugamálið, þá fær maður leiða á því.“