Tæknireglur Formúlu 1 breytast talsvert fyrir tímabilið og því er tilefni til að rannsaka hverjar breytingarnar eru og hvaða áhrif þær munu hafa.
Dekkin
Framdekkin breikka úr því að vera 24,5 sentimetrar í það að vera 30,5 sm. Slíkt á að minnka líkur á undirstýringu og gera ökumönnum kleift að taka beygjur hraðar.
Afturdekkin verða 40,5 sm en voru áður 32,5 sm. Gripið verður því meira og aflið úr vélinni, sem allt fer til afturhjólanna mun skila sér betur.
Yfirbyggingin
Framvængir bílanna breikka talsvert, frá því að vera 165 sm í það að verða 180 sm. Framvængurinn fær á sig odd í miðjunni. Slíku er ætlað að gera bílum kleift að aka nær bílum sem fyrir framan eru, til að auka framúrakstur.
Vegna þess að dekkin breikka eykst heildarbreidd bílsins úr 180 sm í 200 sm.
Gólf bílsins, fyrir aftan ökumann mátti á árinu 2016 vera 130-140 sm en verður að vera 140-160 sm í ár.
Afturvængurinn breikkar úr 75 sm í 95 sm. Eins lækkar afturvængurinn úr 95 sm í 80. Hliðarfletir afturvængsins mega ekki byrja fyrr en í 17,5 sm hæð yfir gólfi bílsins í ár miðað við 12,5 sm áður.
Bílarnir
Bílarnir verða 20 kílógrömmum þyngri, ekki er þó líklegt að ökumenn muni finna mikið fyrir því enda mun hraðinn aukast í samræmi við gripið. Eins hefur hámarks eldsneytisntokun í keppni verið aukin úr 100 kg. í 105 kg.
Vegna breiðar dekkja og meira grips vegna aukinns áhrifa niðurtogs með stærri vængjum munu bílarnir komast talsvert hraðar í gegnum beygjur. Það verður hægt að bremsa seinna á leiðinni inn í beygjurnar og gefa fyrr í á leiðinni út úr beygjunum. Allt þetta mun skila því að skemmri tíma að aka hvern hring.
Bílarnir verða því líklegast reffilegri í útliti og töluvert hraðari. Spá fræðimanna er að bílarnir verði þremur til fjórum sekúndum hraðari á hring í ár en í fyrra. Útlit bílanna mun skýrast þegar liðin hefja að frumsýna þá.
Sjá einnig:Frumsýningardagar nýju Formúlu 1 bílanna
Bílskúrinn: Hvernig eru Formúlu 1 bílarnir að breytast í ár?

Tengdar fréttir

Þetta eru frumsýningardagar nýju Formúlu eitt bílanna
Nýtt tímabil Formúlu 1 hefst með æfingum á Barselóna brautinni 27. febrúar. Liðin kappkosta nú við að klára 2017 bílana sína. Nokkur lið hafa þegar tilkynnt um frumsýningardag, Vísir fer yfir málið.

Manor-liðið í Formúlu 1 er gjaldþrota
Starfsfólk Manor liðsins í Formúlu 1 var sent heim í dag. Enginn kaupandi fannst en liðið var komið í skiptameðferð. Liðið er komið í gjaldþrotameðferð.

FIA samþykkir yfirtök Liberty Media
FIA, Alþjóða akstursíþróttasambandið samþykkti á fundi sínum í dag yfirtöku bandaríska fjölmiðlafyrirtækisins Liberty Media. Liberty Media keypti fyrir áramót ráðandi eignahluti í félagi sem fer með sýningarétt frá Formúlu 1.

Ecclestone rekinn eftir 40 ára starf
Eigendaskipti hafa átt sér stað í Formúlu 1 og alráðurinn Bernie Ecclestone hefur verið settur af.