Tíska og hönnun

Stíllinn breytist ört eftir árstíð og líðan

Guðný Hrönn skrifar
"Kjóllinn er frá Lindex, bolurinn kemur úr skápnum hennar mömmu, buxurnar frá Topshop og skórnir frá Public desire,“ segir Kolfinna um dressið sem hún klæðist.
"Kjóllinn er frá Lindex, bolurinn kemur úr skápnum hennar mömmu, buxurnar frá Topshop og skórnir frá Public desire,“ segir Kolfinna um dressið sem hún klæðist. Vísir/Anton Brink
Fyrirsætan Kolfinna Þorgrímsdóttir er mikil tískuáhugakona og Lífið fékk að yfirheyra hana um áhugaverðan stíl hennar, uppáhaldsflíkur og helstu tískufyrirmyndir svo eitthvað sé nefnt.



Kolfinna er 20 ára og vinnur á Dominos og starfar samhliða því sem fyrirsæta hjá Eskimo models.Vídir/Anton Brink
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum? 

„Mér finnst gaman að blanda stílum saman. Stíllinn minn er allt frá því að vera klassískur og mínímalískur yfir í að vera sportlegur og töffaralegur.“

Er eitthvað sem þú myndi aldrei klæðast? 

„Nei, í rauninni ekki. Stílinn minn breytist svo fljótt og fer algjörlega eftir árstíð, staðsetningu og líðan. Sem dæmi, þá sagðist ég fyrir tveimur árum aldrei ætla að klæðast útvíðum buxum, en í dag elska ég þær.“

Áttu þér tískufyrirmyndir? 

„Veneda Anastasia, Maja Wyh og að sjálfsögðu Olsen-systurnar, þær eru alltaf í mjög töff klæðnaði.“

Uppáhaldsflík? 

„Ég verð að segja UNIF-skórnir mínir, þeir passa við allt.“

Hvaða fatabúðir eru í uppáhaldi? 

„Hér heima eru það Zara og Spúútnik en erlendis er það Cos, Weekday og Urban Outfitters.“

Hvað er svo á óskalistanum? 

„Jensen Black-skór frá Acne Studios og fallegur pels.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.