Stormasamt samband Rob Kardashian og Blac Chyna Ritstjórn skrifar 23. desember 2016 11:15
Að segja að samband Rob Kardashian og Blac Chyna sé stormasamt er heldur vægt til orða tekið. Frá byrjun hafa þau verið að gera allt gjörsamlega vitlaust hjá öllum í kringum sig. Þau byrjuðu saman með látum í byrjun ársins en á þeim tíma bjó Rob heima hjá Khloe systur sinni. Þegar hún frétti af sambandinu henti hún honum út og hann flutti í kjölfarið til Chyna. Í byrjun virtist eins og þau ættu vel saman enda ætlaði hún að hjálpa honum að grenna sig og leita sér hjálpar en Rob hefur glímt við mikið þunglyndi seinustu ár. Stuttu eftir að sambandið hófst bað Rob Chyna um að giftast sér en seinna kom í ljós að hún væri ólétt eftir hann. Þá byrjaði sambandið að verða ansi súrt en þau rifust mikið og Chyna henti unnusta sínum oft út af heimili þeirra. Allt var þetta á meðan þau voru að taka upp sinn eigin raunveruleika þátt sem átti eftir að valda miklum vonbrigðum. Sprengjan sjálf átti sér þó ekki stað fyrr en seinustu helgi. Þá ákvað Blac Chyna að taka mánaðar gamla dóttur þeirra og öll húsgögn og mat út úr húsinu sem Rob hafði keypt fyrir fjölskylduna og hætti með honum. Hann sagði frá þessu öllu saman á Snapchat. Í kjölfarið útskýrði Chyna að það væri erfitt að eiga við Rob enda neitar hann að leita sér hjálpar vegna vandamála sinna. Einnig var greint frá því að Chyna hafi líkamlega ráðist á Rob um helgina þegar hún var ölvuð. Sagan er þó ekki búin þar þar sem tveimur dögum seinna byrjuðu þau aftur saman. Kardashian systurnar Kim, Khloe og Kourtney eru sagðar vera komnar með upp í kok á öllu veseninu í þeim og ætla alfarið að aðskilja sig frá þeim. Það er greinilegt að parið þurfi að vinna vel í sínum málum áður en lengra er haldið þar sem nú sé lítið barn komið í spilið.
Mest lesið Vantar ykkur krydd í kynlífið? Glamour Af sambandsleiða: "Fólk getur freistast út fyrir sambandið" Glamour Fatalína Magneu fyrir Club Monaco vekur mikla athygli Glamour Chelsea Manning á forsíðu The New York Times Magazine Glamour Kim Kardashian heldur áfram að hneyksla Glamour Vinsælustu skó trend ársins 2016 Glamour Einstaklega fjölbreyttur rauður dregill á Glamour verðlaununum Glamour Gigi Hadid opnar sig um líkamsímyndir í Vogue Glamour Gigi Hadid nýtt andlit Topshop Glamour Balmain og HM í samstarf Glamour