Prófessorarnir þrír, Judith Hermann, Nanette Gartrell og Dee Mosbacher, starfa við Harvard háskóla og Kaliforníuháskóla.
Í bréfinu hvetja þær Obama til þess að láta framkvæma mat á andlegri helsu Trumps áður en hann verður vígður í embætti í janúar. Þær vilja ekki slá því á fast hvaða geðsjúkdóm þær telja Trump glíma við en staðhæfðu að mikilmennskutilburðir hans, hvatvísi og óhófleg viðkvæmni fyrir gagnrýni gerðu það að verkum að hann væri vanhæfur í embætti forseta.
Að sama skapi töldu þær að Trump væri óhæfur að greina á milli ímyndunar og veruleika.
Bréfið má lesa í heild sinni hér.
Prófessorarnir þrír eru ekki þeir fyrstu til þess að velta vöngum yfir geðheilsu Trumps. Barack Obama lýsti því yfir í ágúst á þessu ári að dómgreind Trumps og skapgerð hans gerði hann óhæfan til þess að sinna hlutverki forseta.

Umræða um geðheilsu Trump var ekki síður áberandi í gær en hinn verðandi forseti sagði í tísti að Kínverjar hefðu stolið dróna í eigu bandaríska sjóhersins.
Í tístinu sagði hann að gjörð Kínverjanna væri fordæmalaus, eða „unprecedented“ á enskri tungu. Hins vegar stafsetti hann orðið óvart „unpresidented“ og Twitter logaði í kjölfarið. Skömmu síðar eyddi Trump tísti sínu og birti það aftur með orðinu rétt stafsettu.
Sumir tístarar gengu langt í að lesa í rangfærsluna, einhverjir vildu meina að villan endurspeglaði óöryggi hans gagnvart embættinu á meðan aðrir gerðu grín að vankunnáttu hans í stafsetningu.
Þora ekki að segja til um sjúkdómsgreininguna
Prófessorarnir þrír veigruðu sér við að fullyrða nákvæmlega um hvaða geðveila kynni að vera að hrjá Trump en sálfræðingar telja að ekki sé rétt að sjúkdómsgreina fólk án þess að hafa hitt einstaklinginn í persónu.
Hins vegar velti Huffington Post því upp í umfjöllun sinni um bréfið að Trump gæti mögulega verið að kljást við svokallaða sjálfhverfa persónuleikaröskun.
Samkvæmt Samtökum bandarískra sálfræðinga (APA) hrjáir sjálfhverf persónuleikaröskun um eitt prósent fólks.
Í stuttu máli sagt felst sjálfhverf persónuröskun í hegðunarmynstri sem einkennist af mikilmennsku, þörf fyrir aðdáun annarra og skort á samúð.
Hér fyrir neðan má upprunalegt tíst Trumps:
Trump deleted it, but not before I saved it. Freudian slip? We can all hope he, too, soon will be "unpresidented." #LearnToSpell pic.twitter.com/tRjYEYVMJl
— George Takei (@GeorgeTakei) December 17, 2016