Framleiðsla Chanel No.5 í hættu Ritstjórn skrifar 3. desember 2016 10:00 Chanel No.5 er án efa eitt þekktasta ilmvatn heims. Mynd/Skjáskot
Franska tískuhúsið Chanel hefur harðlega gagnrýnt áætlanir um byggingu á nýrri hraðlest sem á að fara frá Marseille til Nice. Hraðlestin á að fara í gegnum Grasse akra þar sem ræktaðar eru rósir og jasmínur sem notaðar eru í Chanel No.5 ilmvatnið. Um tólf rósir og 1.000 jasmínur eru notaðar í 30 millilítra af Chanel No.5. Ef það verður að byggingu brautarteinana í nálægð við ræktunina hótar Chanel að þau muni loka fyrir framleiðsluna. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem að Chanel hótar slíkum aðgerðum en fyrir nokkrum árum ætlaði tískuhúsið að grípa til aðgerða þegar það átti að opna ruslahauga í grennd við ekrurnar. Ekkert varð að þeim áformum og í staðin stækkuðu Grasse akrarnir við sig. Chanel No.5 er án efa þekktasta ilmvatn heims. Það var búið til árið 1921 af Coco Chanel sjálfri og hefur frá þeim tíma verið eitt helsta kennileiti tískuhússins. Blómin sem notuð eru í framleiðslu ilmvatnsins eru einnig notuð við gerð fleiri ilma frá merkinu eins og Coco, No.5 L'eau og No.5 Eau Premiere.
Mest lesið Rauður áberandi á tískuvikunni í Stokkhólmi Glamour 10 atriði sem koma þér á óvart þegar þú eignast börn Glamour Glaðir tískusýningargestir troðfylltu Iðnó Glamour Sérsaumaðar draumaflíkur hátískunnar Glamour Óskarinn 2017: Verst klæddu stjörnurnar Glamour Kvenfólk er sterkara kynið Glamour Vandræðalegustu tískuaugnablik ársins Glamour Í öll fötin í einu Glamour Bambi á forsíðu Glamour Glamour Margot Robbie gekk í það heilaga um helgina Glamour