Pissaði í ruslatunnu á meðan hann var að lýsa Henry Birgir Gunnarsson skrifar 7. desember 2016 22:30 Joe Buck er hér í vinnunni hjá Fox. vísir/getty
Það er ekki alltaf auðvelt að lýsa íþróttaleikjum í sjónvarpi. Ekki síst er náttúran kallar. Það er mismunandi hvernig menn tækla slík vandræði en þegar menn eru í spreng þá er iðulega ekki hægt að gera neitt í málinu. Reynsluboltinn Bob Costas lenti í þessum vandræðum er hann var að lýsa fyrir tveimur árum síðan. Þá hljóp hann bara á klósettið og lét þann er var að lýsa með honum sjá um lýsinguna á meðan. Costas var kominn aftur tveimur mínútum síðar sem er aðdáunarverður tími í ljósi þess að hann var að lýsa á vellinum. Er Joe Buck var að byrja að lýsa NFL árið 1994 bankaði náttúran upp á og hinn ungi Buck, sem lýsir fyrir Fox, vissi ekki hvað hann átti að gera. Hann vippaði því félaganum út og pissaði í ruslafötu á meðan hann lýsti snertimarki í leiknum. Gerði það líka fumlaust. Fagmennska. Það var aftur á móti ekki eins mikil fagmennska í því að aðeins voru búnar fimm mínútur af leiknum þarna. Það er lykilregla að fara á klósettið fyrir leiki til að koma í veg fyrir svona vesen.
NFL Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tímabært að breyta til Handbolti Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Tímabært að breyta til Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Dagskráin í dag: Tími fyrir endurheimt Kallaði dómarann tík og rúmlega það Verstappen áfram hjá Red Bull Atli og Eiður í KR Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Benedikt markahæstur í sannfærandi sigri Kolstad LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Aftur eins marks tap en nú tekur EM við Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Sjá meira