Lífið

Fyrsta ís­lenska tón­listar­mynd­bandið sem tekið er upp á Snapchat

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtilegt lag frá strákunum í Áttunni.
Skemmtilegt lag frá strákunum í Áttunni.
Samfélagsmiðlahópurinn Áttan gaf á dögunum út nýtt tónlistarmyndband við lagið Vinir, en myndbandið var allt tekið upp á samfélagsmiðlinum Snapchat og frumsýnd á þeirra aðgangi.

„Eftir miklar pælingar datt okkur í hug að gefa út fyrsta Íslenska tónlistarmyndbandið á Snapchat þar sem við erum nú mest að vinna með samfélagsmiðlana og lögðum mikla vinnu í myndbandið og erum við mjög ánægðir með útkomuna,“ segir Aron Ingi Davíðsson einn af meðlimum Áttunnar.

Lagið hefur fengið nokkuð góðar viðtökur og er það sem stendur í þriðja sæti á íslenska vinsældarlistanum á Spotify en hér að neðan má sjá myndbandið frá hópnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.