„Já. Núna var að koma út 20. bók Arnaldar, Petsamo, og eftirvæntingin eftir henni var slík að Forlagið dreifði á sjöunda þúsund eintaka við útkomu, sem er töluvert meira en gert hefur verið. Það er augljóslega komið í vana fjölmargra aðdáenda Arnaldar að tryggja sér eintak strax við útkomu og hef ég heyrt af fólki sem tekur sér alltaf frí í vinnu til þess að geta klárað bókina í einum rykk,“ segir Egill Örn og dregur hvergi af sér.
Líkast til sá sem selt hefur flest eintök á erlendri grundu
Velgengnin erlendis hefur líka verið mikil; Arnaldur trónir iðulega í efstu sætum metsölulista þar sem hann kemur út og á sér fjölda dyggra lesenda til dæmis í Frakklandi og Þýskalandi. „Í raun mun víðar,“ segir Egill Örn. Líkast til hefur Arnaldur selt fleiri bækur en nokkur annar Íslendingur á erlendri grundu. Ástæðan fyrir því hvers vegna ekki er hægt að fullyrða þar um er að upplýsingar um hversu mörg eintök bóka Halldórs Laxness hefur selt í gegnum tíðina eru einfaldlega ekki fyrirliggjandi. Það er ekki vitað.
„Á nýjum metsölulista Eymundsson, sem birtur var á miðvikudaginn (2. nóvember) mátti sjá að Petsamo fór rakleitt í fyrsta sæti, þrátt fyrir að hafa aðeins verið einn dag í sölu, en það hefur verið regla að hann fer alltaf beint í fyrsta sæti við útkomu.“
Reykjavíkurnætur söluhæsta bókin
Að sögn framkvæmdastjórans er upplagið er að vanda vel á þriðja tug þúsunda. „En, við höfum þegar gert ráðstafanir til þess að tryggja það að endurprentun náist fyrir jól, komi til þess að hennar verði þörf. Það hefur líka verið sérlega ánægjulegt að sjá hvernig fólki líkar nýja bókin, en hún er að fá glimrandi dóma og segja margir að hún sé í hópi allra bestu bóka Arnaldar.“
Vísir bað Egil Örn að fletta í bókum sínum og komast að því hver af bókum Arnaldar er söluhæst og svarið kemur ef til vill á óvart.

Reykjavíkurnætur kom út árið 2012 og þá dró Arnaldur aftur fram sína frægustu persónu sem er Erlendur Sveinsson, en Erlendur hafði þá verið á ís um hríð. Lesendur tóku Erlendi sem sagt fagnandi ef rýnt er í sölutölur.
Arnaldur dregur vagninn
Bókaútgáfa er þannig saman skrúfuð að söluhærri höfundar brúa rekstrarlegt bil yfir í útgáfu bóka sem seljast kannski lítt sem ekkert. Og er þar af leiðandi tap á. Í því samhengi hlýtur Arnaldur að vera Forlaginu gríðarlega mikilvægur og draga vagninn?
„Það segir sig auðvitað sjálft að það er allur gangur á því hvort útgáfubækur bera sig eða ekki, og líklega því miður svo að fleiri en færri titlar nái ekki að gera í blóðið sitt. þá er auðvitað gríðarlega mikilvægt að það séu þó einhverjar sem að standi undir sér og vel það, og sannanlega skipta þær reksturinn og afkomuna verulegu máli,“ segir Egill Örn. Og bætir við:
„Velgengni Arnaldar hefur skipt sköpum á íslenskum bókamarkaði, en þó ekki bara hér heima heldur hefur hann líka dregið vagninn erlendis þegar kemur að sölu útgáfuréttinda.“