Guðni fór hamförum í frábærum sigri nýliðanna á ÍBV Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. október 2016 21:05 Guðni Ingvarsson skoraði þrettán mörk í kvöld. vísir/eyþór
Nýliðar Selfoss gerðu sér lítið fyrir og unnu rándýrt og frábærlega vel mannað lið ÍBV, 38-32, í níundu umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Selfoss var fimm mörkum yfir í hálfleik, 20-15, og náði mest níu marka forskoti í seinni hálfleik 28-19, en innbyrti á endanum hrikalega sterkan sigur. Línumaðurinn Guðni Ingvarsson fór á kostum í leiknum en hann skoraði þrettán mörk. Einar Sverrisson bætti við átta og Elvar Örn Jónsson skoraði sex fyrir heimamenn. Theodór Sigurbjörnsson var markahæstur gestanna úr Eyjum með þrettán mörk en Grétar Þór Eyþórsson skoraði sex mörk og Dagur Arnarsson skoraði fimm mörk. Fram vann svo góðan sigur á nýliðum Stjörnunnar sem hafa byrjað vel í deildinni og komið skemmtilega á óvart. Fram hafði fjögurra marka sigur, 31-27. Valdimar Sigurðsson skoraði sex mörk fyrir Fram líkt og Andri Þór Helgason en Ari Magnús Þorgeirsson var markahæstur hjá Stjörnunni með níu mörk. Selfoss komst með sigrinum upp fyrir ÍBV en liðið er með tíu stig en Eyjamenn níu. Fram er komið í níu stig líkt og ÍBV en Stjarnan er með átta stig. Afturelding trónir á toppnum með 16 stig og hefur sex stiga forskot á næsta lið.
Olís-deild karla Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Körfubolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Leik lokið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Körfubolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn Fleiri fréttir Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Sjá meira