Byrjuðu báðar þjálfaraferilinn sinn á því að vinna reynslumikla karlþjálfara Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. október 2016 10:00 Hildur Sigurðardóttir og Heiðrún Kristmundsdóttir. Vísir/Stefán
Hildur Sigurðardóttir og Heiðrún Kristmundsdóttir eru báðar á sínu fyrsta tímabili sem þjálfarar í meistaraflokki í körfubolta en þær tóku við liðum í 1. deildinni fyrir þetta tímabil. Hildur og Heiðrún byrjuðu báðar þjálfaraferilinn sinn vel um helgina og fögnuðu báðar sigri í spennuleik. Þær fengu samt eldskírn í fyrsta leik þar sem þær mættu báðar miklum reynslubolta. Benedikt Guðmundsson og Sverrir Þór Sverrisson eru báðir í hópi þeirra þjálfara sem hafa gert bæði karla- og kvennalið að Íslandsmeisturum en urðu að sætta sig við tap á móti nýliðunum um helgina. Það hefur verið alltof lítið um það að konur hafi verið að þjálfar meistaraflokkana í körfuboltanum og margir fagna því að sjá tvær konur taka slaginn í vetur. Hildur Sigurðardóttir og Heiðrún Kristmundsdóttir léku á sínum tíma saman hjá KR-liðinu og urðu meðal annars Íslandsmeistarar saman vorið 2010. Benedikt Guðmundsson var einmitt þjálfari KR-liðsins þann vetur.Hildur Sigurðardóttir og stelpurnar hennar í Breiðabliki unnu 64-62 sigur á Þór Akureyri í Smáranum en Benedikt Guðmundsson þjálfar kvennalið Þórs eins og í fyrra. Telma Lind Ásgeirsdóttir reyndist þjálfara sínum betri en enginn og skoraði 24 stig fyrir Breiðabliksliðið. Eyrún Ósk Alfreðsdóttir skoraði 13 stig og þær Inga Sif Sigfúsdóttir og Sóllilja Bjarnadóttir voru báðar með 10 stig. Fanney Lind G. Thomas var með 21 stig fyrir Þór og Unnur Lára Ásgeirsdóttir bætti við 11 stigum og 11 fráköstum.Heiðrún Kristmundsdóttir og stelpurnar hennar í KR unnu síðan sigur 70-66 á Keflavík í Vesturbænum en Sverrir Þór Sverrisson þjálfar meistaraflokk Keflavíkur en a-lið félagsins spilar í Dominos-deildinni en b-liðið í 1. deildinni. Perla Jóhannsdóttir skoraði 24 stig fyrir KR-liðið, Ásta Júlía Grímsdóttir var með 12 stig og 16 fráköst og Rannveig Ólafsdóttir skoraði 10 stig. Þóranna Kika Hodge-Carr var með 17 stig, 17 fráköst og 6 stoðsendingar í liði Keflavíkur.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Leik lokið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira