„Ekki höfum vér kvenna skap“ Guðmundur Andri Thorsson skrifar 12. september 2016 07:00 Tíðindi helgarinnar í prófkjörsmálum voru ótíðindi í flestum skilningi. Í fyrsta lagi er tilfinningin sú að ekkert hafi í rauninni gerst – engin tíðindi hafi orðið – ríkjandi ástand haldi bara áfram út í hið óendanlega. Í öðru lagi komust í örugg sæti menn sem manni finnst ekki eiga erindi á þing; enn séu kjósendur að senda okkur fulltrúa sem ekki séu líklegir til að auka virðingu fyrir þessari mikilvægustu stofnun landsins. Og í þriðja lagi: fimm alþingiskonur detta út af þingi. Í furðu mörgum prófkjörum helgarinnar taka kjósendur undir með Skarphéðni í Njálu þegar hann svarar frýjunarorðum móður sinnar Bergþóru (sem var drengur góður) með þessum orðum: „Ekki höfum vér kvennaskap.“Helmingur mannkyns Móðir mín sagði einhvern tímann aðspurð um jafnréttismál að hún skildi ekki hvernig karlar gætu haft fordóma gagnvart konum – konur væru helmingur mannkyns. Og bætti við: „Ekki hef ég neina fordóma gagnvart körlum.“ Fjórir karlar í efstu sætum Sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi. Þrír karlar í efstu sætum í Suðurkjördæmi. Tilviljun segja sumir; bara stjórnmálamenn sem dæmdir eru af verkum sínum. Ég veit það ekki. Þegar horft er á karlana sem völdust og konurnar sem sagt var að vera úti þá blasir aðeins eitt við. Ekki höfum vér kvennaskap. Því fer auðvitað fjarri að konur séu alltaf betri stjórnmálamenn en karlar. Margrét Thatcher stóð fyrir breytingum á bresku samfélagi sem voru til óþurftar fyrir flest fólk – niðurrifi á samfélagslegri þjónustu, græðgisvæðingu og auðvaldseflingu sem við erum enn að súpa seyðið af. Og valdníðslu og vitleysisgang vondra kvenstjórnmálamanna á Íslandi þarf ekki að hafa mörg orð um. Skárra væri það nú. Konur eru alls konar. Þær eru með öðrum orðum helmingur mannkynsins, og verður að teljast með nokkrum ólíkindum hversu illa kjósendum Sjálfstæðisflokksins gengur að finna konu að sínu skapi. Þó að konur geti verið skelfilegir stjórnmálamenn – eins og dæmin sanna – þá höfum við óþægilega mörg dæmi um farsælar, vinnusamar og réttsýnar konur sem nú hverfa af þingi af margvíslegum ástæðum: Brynhildur Pétursdóttir úr BF, Katrín Júlíusdóttir úr SF og Ragnheiður Ríkharðsdóttir úr Sjálfstæðisflokki eru allar að hætta þingmennsku of snemma. Margrét Tryggvadóttir hefði svo sannarlega átt erindi aftur á þing. Og eru þá ótaldar þær þingkonur sem kjósendur höfnuðu í prófkjörum helgarinnar, en völdu í staðinn karla sem virðast margir síðri kostur. Samfylkingin sér af Ísafjarðarskörungnum Ólínu Þorvarðardóttur, sem er rökföst og hefur ríka réttlætiskennd – og Valgerði Bjarnadóttur sem hefur verið með ágætustu og hugsjónaríkustu þingmönnum Samfylkingar og sú sem bar hitann og þungann inni á þingi af því að reyna að koma hér á nýrri stjórnarskrá.Kynleiðrétting Sjálfstæðismenn höfnuðu Elínu Hirst úr Kraganum og varaþingmanninum Bryndísi Loftsdóttur, sem báðar eru mjög frambærilegir þingmenn. Þeir höfnuðu líka Unni Brá Konráðsdóttur sem vakið hefur virðingu langt út fyrir flokksraðir fyrir góð störf og Ragnheiði Elínu Árnadóttur sem er umdeildust þessara kvenna, enda hafa henni verið mislagðar hendur í störfum sínum. Hver þessara kvenna hefur verið með sínu móti í störfum sínum og þær ættu að höfða til ólíkra hópa. En nei, kjósendur flokksins völdu heldur kall sem hefur haldið þruglræður í Trump-stíl um innflytjendamál og notað orðið „múslimistar“ um útlent fólk sem ekki hefur annað til saka unnið en að vilja búa hér; og kall sem gat sér orð þegar hann var valinn til að stýra fátækri menningarstofnun og lét það þá verða sitt fyrsta verk að láta stofnunina kaupa handa sér rándýran montjeppa – fór svo að reka fólk til að afla fjár. Og kall sem lítur á hvalveiðar og stóriðju sem helstu hugsjónamál Íslands. Og kall sem er að finna í Panamaskjölum. Og kall og kall og kall. Skiptir það máli hvort karlar eða konur veljast? Nei. Og þess vegna skiptir það einmitt máli þegar aðeins karlar veljast. Því karlar eru alls konar og konur eru alls konar – og konur eru sem sé helmingur mannkyns. Og þess vegna tekur maður eftir því þegar annað kynið nánast hverfur af vettvangi hjá svo stórum og öflugum flokki. Nema Sjálfstæðisflokkurinn telji að nú sé kominn tími fyrir kynleiðréttingu hjá sér – eftir þær umbætur að losa sig við frjálslynda fólkið í Viðreisn.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Andri Thorsson Skoðun Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar