Selena Gomez í Galvan kjól á stjörnuprýddum tónleikum Ritstjórn skrifar 12. júlí 2016 11:00 Selena hefur verið að slá í gegn á Revival tónleikaferðalaginu. Mynd/Getty
Selena Gomez hélt tónleika í Los Angeles um helgina sem voru partur af tónleikaferðalagi hennar um Bandaríkin. Það sem stóð hins vegar upp úr við þessa tónleika var bæði að hún klæddist Galvan kjól á sviðinu og að tónleikarnir voru stútfullir af frægu fólki. Meðal þeirra sem mættu á tónleikana voru Angelina Jolie og Brad Pitt ásamt börnum sínum, The Weeknd, Vanessa Hudgens, Ashley Tisdale, Sia, Sofia Vergara, Halle Berry, Courtney Cox, Jason Derulo og margir fleiri. Selena hefur hlotið mikið lof fyrir tónleikaferðalagið en það er greinilegt að það hafi spurst út á meðal stjarnanna í Hollywood þar sem það voru fáir sem létu sig vanta. Til þess að toppa kvöldið var hún einnig stórglæsileg í Galvan kjól, sem er breskt fatamerki og er rekið meðal annars af Sólveigu Káradóttur, en þetta er í annað sinn sem að Selena klæðist kjól frá merkinu. Selena í glæsilegum Galvan kjól í Las Vegas fyrr á þessu ári. @selenagomez on her #RevivalTour wearing our #Resort17 cut out spaghetti dress Email link in bio to pre-order #galvanlondon #galvanize A photo posted by Galvan London (@galvanlondon) on Jul 10, 2016 at 7:31am PDT
Mest lesið Karen Elson á Íslandi Glamour Jennifer Lawrence var rokkaraleg í prinsessukjól frá Dior Glamour Ein flík, endalausir möguleikar Glamour Bresku forsætisráðherrahjónin kunna að klæða sig Glamour Sýna stríðsátök í íslenskum veruleika Glamour Gallabuxurnar sem passa við allt Glamour "Það stóð nú aldrei til að hafa þjóðina á brjósti“ Glamour Pharrell Williams og Helen Lasichanh eignuðust þríbura Glamour Fimm fatakeðjur sem mega gjarna opna á Íslandi Glamour Dress dagsins í anda Stranger Things Glamour