Íslenski boltinn

Segir samherja sinn í Fram hafa grafið undan sér

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hlynur Atli Magnússon, fyrirliði Fram, Ásmundur Arnarsson í miðjunni og Ingólfur lengst til hægri.
Hlynur Atli Magnússon, fyrirliði Fram, Ásmundur Arnarsson í miðjunni og Ingólfur lengst til hægri. myndir/fram
Furðulegt mál er komið upp í herbúðum Fram í Inkasso-deildinni í fótbolta. Ingólfur Sigurðsson, miðjumaður liðsins, hefur fengið þau skilaboð frá liðinu að hann þurfi að finna sér nýtt lið því hann er sagður svo slæmur í hóp.

„Ég er tekinn á fund í gær og tjáð félagið vilji losa sig við mig undir eins og ástæðan er fyrir því að ég væri svo slæmur í hópnum,“ segir Ingólfur í viðtali við 433.is sem greinir frá málinu.

Ingólfur þvertekur fyrir að hann sé slæmur í hóp. Hann segist eiga í góðu sambandi við liðsfélaga sína og þjálfara og að allir þeir leikmenn sem hann hafi talað við um málið kannist ekki við neitt. Hann sakar Hlyn Atla Magnússon, samherja sinn, um að grafa undan sér.

„Það eina sem hefur komið upp úr krafsinu er að Hlynur Atli Magnússon hafi rætt við þjálfarann og haldið þessu fram, ekki neinn leikmaður kannast við að hafa rætt við Hlyn. Hann er ekki fyrirliði liðsins og hingað til hafa menn ekki leitast eftir því að fara í trúnaðarsamtöl við hann. Mér þykir þetta rosalega leiðinlegt og alvarlegt mál. Það er verið að saka mig um að vera ekki fagmaður,“ segir Ingólfur.

Í viðtali við Fótbolti.net segir Ásmundur Arnarsson, þjálfari liðsins, að það sé rétt að Ingólfur þurfi nú að leita sér að nýju liði því hann er ekki í framtíðarplönum Fram. Hann segir þó að engin slík ákvörðun sé tekin út frá einum manni [Hlyni Atla] eins og Ingólfur vill meina.

„Við horfum yfir sviðið og reynum að taka ákvarðanir með hag liðsins og félagsins í huga. Meira vil ég ekki segja. Mér er illa við að vera í persónulegu skítkasti opinberlega og vill ekki hallmæla Ingólfi opinberlega með neinum hætti. Þetta er ákvörðun sem við tökum og verðum að standa og falla með því,“ segir Ásmundur Arnarsson.

Fram er í sjöunda sæti Inkasso-deildar karla með þrettán stig eftir tíu umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×