Hefja kosningu um nýjan leiðtoga Samúel Karl Ólason skrifar 5. júlí 2016 07:37 Michael Gove, Theresa May, Liam Fox, Andrea Leadsom og Stephen Crabb. Vísir/EPA
Þingmenn Íhaldsflokksins í Bretlandi hefja nú í morgunsárið fyrstu umferð í formannskjöri eftir að David Cameron, forsætisráðherra, sagði af sér í kjölfar Brexit kosninganna þar sem Bretar ákváðu að hverfa úr Evrópusambandinu. Nýr formaður flokksins mun taka við því erfiða verkefni að semja við Evrópusambandið um útgöngu Breta. Talið er líklegast að Theresa May innanríkisráðherra verði valin sem næsti formaður en orkumálaráðherrann Andrea Leadsom, þykir einnig koma til greina en hún hlaut í gær stuðningsyfirlýsingu frá Boris Johnson. Fastlega hafði verið búist við því að Johnson myndi bjóða sig fram og sigra nokkuð örugglega en hann ákvað hins vegar í síðustu viku að gera það ekki. Þá hefur Nigel Farage, formaður sjálfstæðisflokksins, UKIP, einnig lýst því yfir að hann sé hættur í pólitík. Þannig hafa því þeir tveir sem heitast börðust hvað heitast fyrir Brexit, ákveðið að draga sig í hlé eftir að sigur vannst. Um er að ræða fyrstu umferð af nokkrum og mun sá sem fær lakasta kosningu hellast úr lestinni. Önnur umferð verður á fimmtudaginn og svo sú þriðja eftir viku. 330 þingmenn flokksins taka þátt í kosningunum.
Brexit Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Innlent Fleiri fréttir Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sjá meira