Hildur Sigurðardóttir þjálfar Blikakonur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júní 2016 16:03 Hildur Sigurðardóttir ásamt Sigríði H. Kristjánsdóttur, formanni körfuknattleiksdeildar Breiðabliks. Mynd/Heimasíða Breiðabliks
Hildur Sigurðardóttir, leikjahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi, hefur verið ráðin sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Breiðabliki. Hildur mun stýra Blikakonum í 1. deildinni á komandi tímabili. Hildur gerði þriggja ára samning við Breiðablik og hefur störf á morgun 1. júlí. Breiðablik segir frá þessu á heimasíðu sinni. Hildur lagði skóna á hilluna vorið 2015 eftir að hafa unnið tvo Íslandsmeistaratitla með uppeldisfélagi sínu Snæfelli. Hún hafði áður orðið þrisvar sinnum Íslandsmeistari með KR. Hildur hefur leikið flesta leiki fyrir íslenska kvennalandsliðið frá upphafi eða 79 talsins en síðustu leiki sína með liðinu spilaði hún sumarið 2014. Hildur er þriðja stigahæsti leikmaður efstu deildar kvenna frá upphafi og engin í karla né kvennaflokki hefur gefið fleiri stoðsendingar í efstu deild hér á landi. Hildur var kosin besti leikmaður deildarinnar tvö síðustu tímabil sín en hún hlaut þau verðlaun alls fjórum sinnum á ferlinum. Hildur lék með ÍR, KR, Grindavík og Snæfelli í efstu deild á Íslandi og þá var hún einnig atvinnumaður í Svíþjóð. Hún hefur því öðlast gríðarlega reynslu á frábærum ferli sínum. Blikar höfðu áður tilkynnt að Lárus Jónsson myndi þjálfa kvennalið Breiðabliks en hann mun nú einbeita sér alfarið að þjálfun meistaraflokks karla, ásamt því að taka að sér fleiri verkefni er varða starf deildarinnar.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Sjá meira