Fyrri æfingin
Ökumenn fóru afar varlega af stað, brautin er glæný og því óvarlegt að aka hratt af stað í upphafi. Mikið var um að ökumenn þyrftu að snúa við í þröngum öryggissvæðum.
Valtteri Bottas var þriðji á fyrri æfingunni á Williams bílnum. Williams bíllinn hentar einkar vel á brautum með háan meðalhraða.
Daniel Ricciardo á Red Bull var fyrstur til að prófa varnarveggina. Hann missti stjórn á afturenda bílins og lenti harkalega á varnarvegg í beygju 15.

Rosberg lenti í tæknilegri bilun undir lok æfingarinnar. Ferrari menn áttu ekkert sérstaka æfingu. Kimi Raikkonen lenti í MGU-K bilun. Það er rafallinn sem safnar orku þegar bremsað er. Afturdekkin læstust á Ferrari bílnum og Raikkonen gat ekki tekið frekari þátt í æfingunni.
Sebastian Vettel á Ferrari rúllaði síðasta hringinn rólega í þriðja gír. Það var ekkert að bílnum að hans sögn eftir æfinguna. Hann sagði að það hefði verið varúðarráðstöfun.
Bein útsending frá tímatökunni hefst klukkan 12:50 á Stöð 2 Sport á morgun. Bein útsending frá tímatökunni hefst svo klukkan 12:30 á sunnudag, einnig á Stöð 2 Sport.
Hér fyrir neðan má sjá öll helstu úrslit helgarinnar.