Ólafur: Víkingar fengu allan Gary Martin pakkann í Eyjum Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. maí 2016 11:30
Víkingar unnu sinn fyrsta sigur í Pepsi-deild karla í fótbolta þetta sumarið á sunnudaginn þegar Fossvogsliðið lagði ÍBV, 3-0, í Vestmannaeyjum. Víkingar höfðu fyrir leikinn aldrei áður unnið þriggja marka sigur í Eyjum og er þetta stærsta tap ÍBV á heimavelli í 20 ár eða síðan liðið tapaði 4-0 fyrir KR sumarið 1996. Gary Martin var maður leiksins þrátt fyrir að brenna af vítaspyrnu en hann skoraði sitt fyrsta mark í sumar og lagði upp annað fyrir Viktor Jónsson. En hann gerði meira en það. „Það hefur verið lýst eftir mörkum frá Gary. Hann klikkar á víti í leiknum og klikkar á góðu færi áður en hann skorar,“ sagði Ólafur Kristjánsson um Gary í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport HD í gærkvöldi. „Mér finnst það sterkt hjá Gary Martin að nýta þetta þrönga færi og líka þegar hann samgleðst félögum sínum því það viljum við sjá.“ „Svo leggur hann líka upp mark fyrir Viktor en lykilatriðið var að Gary var inn í leiknum allan tímann. Mér hefur fundist hann detta svolítið út úr leikjunum undanfarið. Þarna var Gary allur pakkinn. Hann var góður, góður fyrir liðið og góður fyrir sig. Það er gott fyrir Víkinga,“ sagði Ólafur og Arnar Gunnlaugsson bætti við: „Víkingar voru virkilega öflugir og sterkir í þessum leik. Víkingarnir hafa verið að spila vel í síðustu fjórum leikjum þó þeir hafi ekki fengið mörg stig. En í þessum leik sýndu þeir allar sínar bestu hliðar,“ sagði Arnar Gunnlaugsson. Alla umræðuna má sjá í spilaranum hér að ofan.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Misstirðu af mörkunum 14 úr Pepsi-deildinni í gær? | Sjáðu þau öll hér Gary Martin komst á blað fyrir Víking og Viðar Ari Jónsson skorað tryllt mark fyrir Fjölni. 23. maí 2016 10:30 Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - Víkingur 0-3 | Víkingssigur í Eyjum | Sjáðu mörkin og vítið Eyjamenn hafa farið vel af stað en uppskera Víkinga er rýr enn sem komið er. 22. maí 2016 19:45 Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Dagskráin í dag: Tími fyrir endurheimt Sport FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Fleiri fréttir FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Sjá meira
Misstirðu af mörkunum 14 úr Pepsi-deildinni í gær? | Sjáðu þau öll hér Gary Martin komst á blað fyrir Víking og Viðar Ari Jónsson skorað tryllt mark fyrir Fjölni. 23. maí 2016 10:30
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - Víkingur 0-3 | Víkingssigur í Eyjum | Sjáðu mörkin og vítið Eyjamenn hafa farið vel af stað en uppskera Víkinga er rýr enn sem komið er. 22. maí 2016 19:45