Meirihluti Breta gegn útgöngu úr ESB

Nýja könnunin ætti að valda þeim sem vilja yfirgefa ESB áhyggjum þar sem að helstu stuðningshópur útgöngu virðast hafa skipt um skoðun. Þessi skoðunakönnun er í takt við kannanir síðustu vikna sem benda til þess að Bretland muni vera áfram í ESB eftir kosningarnar þann 23. júní næstkomandi.
Könnunin sýnir að 57 prósent þeirra sem sögðust hafa kosið Íhaldsflokkinn í síðustu kosningum í fyrra vilji að Bretland verði áfram í ESB. Í mars mældist sá hópur einunigs með 34 prósent fylgi. Því virðist sem kjósendur Íhaldsflokksins séu að fylgja forsætisráðherra sínum, David Cameron, og vilja vera áfram í ESB.
Bretar sem eru 65 ára eða eldra eru sá hópur sem líklegastur er til að styðja útgöngu úr ESB. Hins vegar sögðust 52 prósent þeirra styðja áframhaldandi viðveru núna, samanborið við 34 prósent í mars.
Tengdar fréttir

Ytri Evrópusamvinna gæti tekið við af ESB
Útganga Bretlands úr ESB hefur töluverð áhrif á Ísland þar sem Bretland er okkar nánasti viðskiptaaðili í Evrópu.

Framkvæmdastjóri OECD beitir sér gegn útgöngu Breta úr ESB
Angel Gurria, framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, segir að Bretland ætti að vera áfram í Evrópusambandinu.

Forystumenn fylkinga í Brexit kosningunum að fara á taugum
Boris Johnson segir markmið Evrópusambandsins þau sömu og Hitlers þótt skriffinnar í Brussel noti önnur vinnubröðg en nasistarnir.

AGS telur útgöngu úr ESB hafa slæmar afleiðingar
Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), segir það hafa mjög slæmar afleiðingar kjósi Bretar að ganga úr Evrópusambandinu (ESB)

Atvinnulífið klofið í afstöðu til Evrópusambandsins
Meirihluti þeirra sem starfa í bresku atvinnulífi hyggst greiða atkvæði með áframhaldandi aðild Breta að Evrópusambandinu.

Pundið gæti veikst um 15%
Ef Bretland yfirgefur Evrópusambandið myndi atvinnulausum fjölga um allt að átta hundruð þúsund og gengi breska pundsins gæti veikst um fimmtán prósent gagnvart öðrum gjaldmiðlum