Anton og Jónas hita upp fyrir bronsleikinn í Köln með oddaleiknum í kvöld Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. maí 2016 11:42 Anton og Jónas verða í eldlínunni í kvöld. vísir/stefán
Fremsta dómarapar landsins, þeir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson, munu dæma oddaleik Hauka og Aftureldingar í Schenker-höllinni í kvöld. Þeir félagar dæmdu einnig fjórða leik liðanna í N1-höllinni í Mosfellsbæ á mánudaginn þar sem Haukar fóru með sigur af hólmi, 29-30. Þetta er í annað sinn sem Anton og Jónas dæma oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í karlaflokki. Fyrir tveimur árum dæmdu þeir oddaleik Hauka og ÍBV í Schenker-höllinni þar sem Eyjamenn fögnuðu sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli.Sjá einnig: Þreytan hefur ekkert háð Haukum Anton dæmdi einnig oddaleik Hauka og Vals 2010 með Hlyni Leifssyni og er því að dæma sinn þriðja oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Anton jafnar þar með við Stefán Arnaldsson sem dæmdi þrjá oddaleiki um Íslandsmeistaratitilinn á sínum tíma. Stefán dæmdi oddaleik Vals og KA 1995 ásamt Rögnvaldi Erlingssyni og oddaleiki KA og Hauka 2001 og Vals og KA ári seinna með Gunnari Viðarssyni. Þótt þetta verði síðasti leikurinn sem Anton og Jónas dæma á þessu Íslandsmóti eru stór verkefni framundan hjá þeim félögum. Anton og Jónas munu dæma leikinn um bronsið á Final Four helgi Meistaradeildar Evrópu í Köln sunnudaginn 29. maí og þá verða þeir meðal dómara á Ólympíuleikunum í Ríó í ágúst.
Olís-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fleiri fréttir Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Sjá meira