Kátir karlar 20 ára 29. apríl 2016 09:00 Elsti félaginn er 92 ára og yngsti 70 ára. vísir
Kórsöngur er talinn heilsusamlegur. Í grein í South China Morning Post frá því í desember 2014 kemur fram að kórsöngur er af hinu góða bæði tilfinningalega, líkamlega og félagslega og fullyrt er að heilsusamleg áhrif séu vísindalega rökstudd. Söngurinn er sagður góður fyrir lungu, hjarta og blóðflæði, bætir svefn, þjálfar andlitsvöðva, bætir hvernig á að bera sig, opnar öndunarfæri, framleiðir endorfine, bætir ónæmiskerfið, dregur úr reiði og áhyggjum, bætir sjálfsímynd, minnkar streitu og hvetur til tengsla við aðra. Í annarri grein er talið að kórsöngur auki ekki aðeins súrefnismagnið í blóðinu heldur leysir úr læðingi „hamingju“ hormóna eins og oxytocin sem talið er að minnki streitu og lækki blóðþrýsting. Kórsöngur er vinsæll á Íslandi. Áætlað hefur verið að minnst 3.000 manns taki þátt í kórastarfi. Karlakórinn Kátir karlar var stofnaður 1996 hefur því starfað í 20 ár á þessu ári. Í kórnum eru nú 37 félagar. Margir kórfélagar eru með langa reynslu af kórsöng, hafa sungið í kórum í tugi ára og syngja enn eins og í Karlakórnum Fóstbræðrum, Karlakór Reykjavíkur, Óperukórnum í Reykjavík og kirkjukórum. Aðrir félagar hófu kórsöng þegar eftirlaunaaldri var náð. Kórinn hefur nokkra sérstöðu en að því sem félagar vita best hefur KKK hæstan meðalaldur kóra á Íslandi eða 77 ár.Sveinn Pálsson er 92 ára.Elsti starfandi félaginn er 92 ára og sá yngsti að verða 70 ára. Svo eru 9 félagar á aldrinum 80 og 90 ára, 25 félagar eru 60 og 70 ára og 2 félagar innan við 70 ára. Kórinn æfir vikulega yfir veturinn og kemur fram og syngur fyrir aldraða á hjúkrunarstofnunum einkum fyrir jólin.Sá elsti 92 ára Elsti félagi kórsins Sveinn Pálsson er 92 ára. Sveinn er fæddur og uppalinn í Sandgerði og hefur sungið í kórum í 72 ár síðan hann hóf tvítugur söng í Hvalsneskirkjukórnum. Sveinn syngur nú í 4 kórum. Hann söng með Keflavíkurkvartettinum á sínum tíma. Söngur með kórum einkum Karlakórnum Fóstbræðrum hefur verið stór þáttur í lífi Sveins. Hann söng m.a. með 14 Fóstbræðrum inn á tvær plötur. Sveinn spilaði fyrrum á harmóníku á dansleikjum í Sandgerði og þar kynntist hann eiginkonu sinni Ingibjörgu Marteinsdóttur á einu ballinu. Þau hafa verið gift í 65 ár, eiga 5 börn og 32 afkomendur. KKK kórinn í félagi við blandaðan kór Félags eldri borgara í Reykjavík heldur vortónleika í Grensáskirkju föstudaginn 29. apríl kl. 17 undir yfirskriftinni Söngurinn yngir og kætir. Söngstjóri beggja kóranna er Gylfi Gunnarsson og meðleikari á píanó er Hrönn Þráinsdóttir.
Menning Mest lesið Eignuðust stúlku með hjálp staðgöngumóður Lífið Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Bíó og sjónvarp „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Lífið Fréttatía vikunnar: Þorrinn, gervigreind og háloftin Lífið Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið Þurfti að gegna fjölmörgum hlutverkum samtímis sem aðstandandi Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Lífið Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði Lífið Páll Óskar féll í yfirlið og þríkjálkabrotnaði Lífið Fleiri fréttir Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira