Ian Cameron, faðir David Cameron forsætisráðherra Bretlands, tengdist skattaskjóli í á Bahama eyjum áður en hann lést árið 2010.
Samkvæmt frétt Business Insider um málið var Ian Cameron einn af stjórnendum Blairmore Holdings Inc. sem skráð var í Panama og greint er frá í Panama-skjölunum svokölluðum. Félagið var metið á 25 milljóna punda eða um fimm milljarða króna. Hann stofnaði félagið á níunda áratug síðustu aldar og getur því verið að félagið hafi verið nýtt til að forðast fyrirtækjaskatta í allt að þrjátíu ár.
Engar vísbendingar eru þó um það að Cameron hafi nýtt sér Blairmore Holdings Inc. til að forðast tekjuskatt. Fyrir fjórum árum lýsti David Cameron því yfir að hann myndi beita sér gegn skattaskjólum.
Faðir Cameron tengist skattaskjóli
Tengdar fréttir

Panama-skjölin: Þýskt dagblað segir storm nálgast
Fjallað um tengsl íslenskra ráðherra við aflandsfélög í skattaskjólum.

Sex hundruð Íslendingar sagðir tengjast Panama-skjölunum
Upplýsingar um fjármuni sem íslensk stjórnvöld hafa leitað að frá hruni eru sögð vera í Panama-skjölunum

Panama-skjölin: Víðtæk umfjöllun um allan heim
Hin svokölluðu Panama-skjöl, sem Kastljósþáttur kvöldsins byggir á og taka til aflandsfélaga í skattaskjólum um allan heim, flæða nú yfir veraldarvefinn.