Conor McGregor sýnir bílaflotann Finnur Thorlacius skrifar 10. mars 2016 09:48
Írinn Conor McGregor, fjaðurvigtarmeistari í UFC bardagaíþróttinni er ekki feiminn við að sýna vænan bílaflota sinn og víst er að þar fer margur fagur fákurinn. McGregor á til dæmis Lamborghini Aventador, Rolls Royce, Bentley, Range Rover, Mercedes Benz S500 AMG Coupe, Cadillac Escalade, Ford Mustang og þrjá BMW bíla, þ.e. BMW i8, BMW 4 og BMW 5. Hann hefur því komið sér upp ágætu safni af bílum af dýrari gerðinni og á því sést hversu vel hann þénar af bardagaíþrótt sinni. Fyrsti bíllinn sem Conor McGregor átti var hinsvegar glæný Opel Astra sem hann átti að greiða af fastar mánaðargreiðslur en við það stóð hann ekki og því var bíllinn sóttur heim til hans af Opel. Þannig er ekki komið fyrir McGregor nú, hann staðgreiðir bíla sína og safnar þeim eins og margur annar nýríkur maðurinn. Sjá má hluta af bílasafni hans í meðfylgjandi myndskeiði og þar bregður fyrir okkar manni, Gunnari Nelson fyrir framan BMW i8 bíl Conors.Hann á líka Bentley.Og Rolls Royce.Og BMW i8.Og Cadillac Escalade.
Bílar video Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent