Verkalýðsbarátta vinnandi fólks Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 5. mars 2016 08:45 Sumarliði Ísleifsson í essinu sínu í myndasal Þjóðminjasafnsins. Fréttablaðið/Ernir
Flestar myndirnar eru frá því á öðrum áratug síðustu aldar og fram um 1970. Við sýnum fólk í öllum mögulegum greinum atvinnulífsins og þær aðstæður sem það vann við, og erum líka með nokkrar myndir sem tengjast kjaradeilum,“ segir Sumarliði Ísleifsson sagnfræðingur um sýninguna Vinnandi fólk - Alþýðusamband Íslands 100 ára sem opnuð er í dag, laugardag, í myndasal Þjóðminjasafnsins.Endurvinnsla á pappír eftir miðja 20. öld. Mynd: Guðni Þórðarson, Ljósmyndasafn ÍslandsHún fjallar um þátt verkalýðshreyfingarinnar í því að móta samfélagið, með baráttu sinni fyrir bættum kjörum fólks. Sumarliði er vel kunnugur efninu eftir að hafa skrifað sögu ASÍ sem kom út 2013 í tveimur bindum upp á 800 síður. Auk um 70 ljósmynda einnig eru ýmiss konar skjöl á sýningunni, tilkynningar og auglýsingar sem tengjast sögu hreyfingarinnar.Stúlkur við síldartunnur: Neskaupsstaður 1965. Mynd: Ari Kárason. Ljósmyndasafn ÍslandsÍ sýningarborðum er fjallað um það þegar atvinnurekendur í Keflavík reyndu að koma í veg fyrir stofnun verkalýðsfélags árið 1931. Einnig um viðamikið verkfall árið 1955 sem stóð í sex vikur. „Það eru líklega hörðustu verkfallsaðgerðir sem dæmi eru um hér á landi, til dæmis voru settir upp vegatálmar á leiðum til Reykjavíkur til að loka á aðflutninga til borgarinnar. Ástand sem er fjarri fólki núna,“ segir Sumarliði. Skipasmíði á Akureyri á sjötta áratug 20. aldar. Mynd: Eðvarð Sigurgeirsson, Minjasafnið á AkureyriHann nefnir þriðja þemað í borðunum, verkakvennahreyfinguna. „Hér á landi voru hlutfallslega mun fleiri verkakvennafélög en í löndunum kring um okkur,“ upplýsir Sumarliði. „Konur fengu nefnilega ekki aðgang að sumum karlafélögunum og Kvenréttindafélagið átti einnig frumkvæði að því að stofna verkakvennafélög.“ Að síðustu getur Sumarliði um heimildamynd um Alþýðusambandið sem nú verður sýnd í fyrsta skipti. „Myndin er líklega tekin 1952 eða 1953 en hefur aldrei verið sýnd og í raun aldrei lokið við hana. Hún er varðveitt á Kvikmyndasafninu og er sennilega tekin af Óskari Gíslasyni sem var bæði ljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður. Þetta er tæplega klukkustundar löng mynd og verður sýnd lítið stytt en settar inn lágmarksupplýsingar um efnið.“
Menning Mest lesið Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Lífið Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Lífið Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum Tíska og hönnun Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Leikjavísir Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira