Jafnt í Víkinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. mars 2016 18:34 Einar Baldvin átti góðan leik í marki Víkings. vísir/stefán
Fallnir Víkingar gerðu 20-20 jafntefli við Akureyri í fyrsta leik 23. umferðar í Olís-deild karla í handbolta í dag.Víkingar féllu endanlega niður í 1. deild eftir tap fyrir Aftureldingu í síðustu umferð en lærisveinar Ágústs Jóhannssonar voru klaufar að landa ekki sigri í Víkinni í dag. Víkingur leiddi lengst af en Akureyri átti fínan endasprett og náði að tryggja sér annað stigið. Jóhann Reynir Gunnlaugsson var markahæstur í liði Víkings með sex mörk en Hlynur Óttarsson kom næstur með fjögur. Unglingalandsliðsmaðurinn Einar Baldvin Baldvinsson varði yfir 20 skot í marki heimamanna. Brynjar Hólm Gestsson, Sigþór Heimisson, Kristján Orri Jóhannsson, Halldór Logi Árnason og Bergvin Þór Gíslason skoruðu þrjú mörk hver fyrir Akureyri. Sá síðastnefndi fékk beint rautt spjald snemma í seinni hálfleik fyrir að skjóta boltanum í andlit Einars Baldvins úr vítakasti. Víkingar eru rótfastir við botninn með átta stig en Akureyri er enn í 8. sæti, nú með 20 stig.Mörk Víkings: Jóhann Reynir Gunnlaugsson 6, Hlynur Óttarsson 4, Atli Karl Bachmann 3, Karolis Stropus 2, Víglundur Jarl Þórsson 2, Atli Hjörvar Einarsson 1, Ægir Hrafn Jónsson 1, Logi Ágústsson 1.Mörk Akureyrar: Brynjar Hólm Gestsson 3, Sigþór Heimisson 3, Kristján Orri Jóhannsson 3, Halldór Logi Árnason 3, Bergvin Þór Gíslason 3, Hörður Másson 2, Andri Snær Stefánsson 1, Ingimundur Ingimundarson 1, Róbert Sigurðarson 1.
Olís-deild karla Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira