Jonas hetja Benfica á Ljósvangi Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. febrúar 2016 21:30 Jonas var hetja Benfica. Vísir/afp
Benfica vann dramatískan 1-0 sigur á Zenit frá Pétursborg í fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Þegar allt stefndi í markalaust jafntefli braut Domenico Criscito, leikmaður Zenit, af sér við vítateig rússneska liðsins og gaf aukaspyrnu. Criscito fékk sitt annað gula spjald fyrir brotið og var rekinn af velli, en hann missir því af seinni leik liðanna í Rússlandi. Hlutirnir fóru úr öskunni í eldinn fyrir Zenit því Brasilíumaðurinn Jonas tryggði Benfica sigur með skallamarki upp úr aukaspyrnunni eftir sendingu frá Nicoás Gaitán, 1-0. Argentínumaðurinn Gaitán hefur verið öflugur fyrir Benfica á tímabilinu og er sagður á teikniborðinu hjá Manchester United fyrir sumarinnkaupin. Þetta var fyrsti keppnisleikur rússneska liðsins í tíu vikur eða síðan það mætti Gent í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Seinni leikur liðanna fer fram miðvikudaginn níunda mars á heimavelli Zenit í Pétursborg en þangað fer portúgalska liðið með eins marks forskot.
Meistaradeild Evrópu Tengdar fréttir PSG fer með eins marks forskot til Lundúna | Sjáðu mörkin Edison Cavani tryggði Paris Saint-Germain sigur á móti Chelsea í Meistaradeildinni. 16. febrúar 2016 21:30 Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira
PSG fer með eins marks forskot til Lundúna | Sjáðu mörkin Edison Cavani tryggði Paris Saint-Germain sigur á móti Chelsea í Meistaradeildinni. 16. febrúar 2016 21:30