Tugir fallnir í árás Bandaríkjahers á stöðvar ISIS í Líbíu Atli Ísleifsson skrifar 19. febrúar 2016 17:13 Noureddine Chouchane er sagður hafa skipulagt hryðjuverkaárásina á Bardo-safnið í Túnisborg á síðasta ári þar sem nítján féllu. Mynd/Lögregla í Túnis
Að minnsta kosti 38 manns hafa fallið í loftárásum Bandaríkjahers á stöðvar uppreisnarmanna ISIS í Líbíu í dag. Loftárásirnar voru gerðar á búðir ISIS í Sabratha, um sjötíu kílómetrum vestur af Trípolí. Talsmaður Bandaríkjahers segir líklegt að túníski hryðjuverkamaðurinn, Noureddine Chouchane, hafi fallið í árásunum. Chouchane hefur verið bendlaður við tvær mannskæðar hryðjuverkaárásir sem gerðar voru í Túnis á síðasta ári. Í frétt BBC um málið segir að ISIS hafi verið virkir í Líbíu í rúmt ár og áætlar Bandaríkjaher að vígamenn samtakanna þar séu um sex þúsund talsins. Ófremdarástand hefur ríkt í Líbíu síðustu ár, en einræðisherranum Muammar Gaddafi var steypt af stóli og hann drepinn árið 2011. Bandarísku orrustuþoturnar tóku á loft frá breskri herstöð og hefur varnarmálaráðherra Bretlands, Michael Fallon, fagnað árásinni en tekur fram að breskar orrustuþotur hafi ekki verið notaðar. Borgarstjóri Sabratha segir að 41 maður hafi fallið í árásinni, fyrst og fremst Túnismenn. Ash Carter, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að Bandaríkjaher muni halda loftárásum sínum í Líbíu áfram.
Mið-Austurlönd Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira