Hollenska konan fékk átta ára dóm í Hæstarétti Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. febrúar 2016 15:15 Mirjam Foekja van Twuijver hlaut ellefu ára dóm. Verði dómurinn staðfestur í Hæstarétti verður um að ræða þyngsta fíkniefnadóm sem fallið hefur hér á landi. Vísir
Mirjam Foekje van Twuijver frá Hollandi var dæmd í átta ára fangelsi í Hæstarétti í dag. Hún var sakfelld fyrir fíkniefnasmygl en allt bendir til þess að hún hafi verið burðardýr í málinu. Héraðsdómur hafði áður sakfellt hana og dæmt í 11 ára fangelsi en hámarksrefsing í málaflokknum er tólf ár. Um var að ræða þyngsta dóm sem fallið hefur í fíkniefnamáli hér á landi. Atli Freyr Fjölnisson, sem veitti meintum fíkniefnum viðtöku við Hótel Frón nokkrum dögum eftir komu Mirjam til landsins, var dæmdur í fjögurra ára fangelsi. Hafði hann áður hlotið fimm ára dóm í héraði. Hlutverk Atla var að taka við fíkniefnunum og koma þeim í hendur annars óþekkts aðila. Hvorki Mirjam né Atli Freyr virðast hafa vitað hverjir stóðu að innflutningnum en þau fengu hvort um sig sérstaka farsíma í hendur til að hafa samskipti við ónefnda aðila hér á landi. Til frádráttar fangelsisdómunum kemur gæsluvarðhald beggja en Mirjam hefur verið í varðhaldi undanfarna tíu mánuði eða frá komu hennar til landsins 4. apríl. Atli Freyr varð í gæsluvarðhaldi í tvær vikur eftir að hann var handtekinn í fyrrnefndri tálbeituaðgerð. Hollenskt par var stöðvað með yfir 200 þúsund e-töflur í húsbíl á Seyðisfirði í september í fyrra.Vísir/GVA 85 þúsund e-töflur Mirjam og sautján ára dóttir hennar fluttu inn tuttugu kíló af fíkniefnum frá Hollandi í apríl í fyrra. Í tösku Mirjam fundust rúm níu kíló af amfetamíni en í tösku dóttur hennar voru tíu kíló af MDMA-mulningi. Úr mulningnum er talið að framleiða hafi mátt um 85 þúsund e-töflur. Dóttir hennar var ekki saksótt þar sem sannað þótti að hún hafi hvorki vitað af því að efni væru í hennar tösku, né út á hvað ferðin gekk. Þegar Mirjam var sagt að það hefðu verið fíkniefni í tösku dóttur hennar líka varð hún samvinnuþýð við lögregluna. Mirjam tók meðal annars þátt í tálbeituaðgerð á Hótel Fróni í Reykjavík. Vísir hefur fjallað með ítarlegum hætti um þessa aðgerð en ekki verður annað sagt en að hún hafi mistekist. Lögreglan ber fyrir sig að samskiptavandamál hafi orðið til þess að karlmaður var handtekinn á staðnum í stað þess að honum væri fylgt eftir til að hafa mögulega hendur í hári skipuleggjenda smyglsins. Fyrir liggur að lögreglufulltrúi sem kom að stjórnun aðgerða á vettvangi sætir rannsókn héraðssaksóknara vegna ásakanna um spillingu í starfi frá kollegum. Samkvæmt heimildum Vísis telja sumir kollegar lögreglufulltrúans að aðkoma hans að málinu hafi orðið til þess að það fór út um þúfur. Fulltrúanum hefur verið vikið úr starfi á meðan mál hans er til rannsóknar. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi verjandi Atla Freys, hafði farið fram á að málinu yrði frestað vegna rannsóknar á hendur lögreglufulltrúanum. Vildu frestun en nýr verjandi féll frá kröfunni Verjendur Mirjam og Atla Freys fyrir Hæstarétti, Björgvin Jónsson og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, höfðu farið fram á að málinu yrði frestað á meðan ásakanir á hendur fyrrnefndum lögreglufulltrúa væru til rannsóknar. Skömmu fyrir málflutning í Hæstarétti fengu verjendur í hendurnar skýrslu umrædds lögreglufulltrúa sem einhverra hluta vegna hafði ekki þótt tilefni til að setja í gögn málsins. Fram til þess tíma hafði ekkert tengt lögreglufulltrúann við aðgerðina og var hann til að mynda ekki fenginn til þess að bera vitni í héraði heldur var undirmaður hans sendur á vettvang í hans stað. Skömmu fyrir málflutning í Hæstarétti skipti Atli Freyr um verjenda í málinu og Bjarni Hauksson kom inn í stað Vilhjálms. Fór svo að verjendurnir, Björgvin og Bjarni, héldu ekki til streitu kröfunni um að málinu yrði frestað. Velta má fyrir sér hvort niðurstaða í dómssal hefði verið önnur ef tálbeituaðgerð lögreglunnar, þar sem Mirjam gegndi lykilhlutverki og lagði sig í hættu, hefði ekki farið jafn ótrúlega út um þúfur og raunin varð. Skrifast klúðrið alfarið á lögreglu en aldrei hefur þótt ástæða til að fá óháða úttekt á því hvers vegna fór sem fór. Efni upp á hundruð milljóna króna Mirjam játaði innflutninginn fyrir dómi, það er að hafa vitað af fíkniefnum í eigin tösku, en sagði aðila í Hollandi hafa svikið sig með því að setja fíkniefni einnig í tösku dóttur hennar. Í töskunni sem dóttir hennar bar voru tíu kíló af MDMA. Athygli vakti að svo til engin tilraun var gerð til að fela fíkniefnin í töskum þeirra mæðgna. Töskurnar voru stútfullar af fíkniefnum en götuvirði efnanna hér á landi nemur hundruðum milljóna króna. Að neðan má sjá tímalínu um málið.
Leki og spilling í lögreglu Tengdar fréttir Ætla að hlýða á rök verjenda um frestun vegna lögreglufulltrúans Málflutningur í máli ríkissaksóknara á hendur hollenskri konu og íslenskum karlmanni mun fara fram næstkomandi miðvikudag í Hæstarétti. 22. janúar 2016 10:45 Krefst þess að dómurinn yfir Mirjam verði staðfestur Hulda María Stefánsdóttir, saksóknari hjá ríkissaksóknara, fer fram á að ellefu ára dómur yfir hinni hollensku Mirjam Foekje van Twuijver úr héraði verði staðfestur. 27. janúar 2016 09:20 Vill að Hæstiréttur nýti tækifærið og hvetji burðardýr til samvinnu með lögreglu Björgvin Jónsson, verjandi Mirjam Foekje van Twuijver, telur fulla ástæðu til að milda ellefu ára dóm sem hún hlaut í héraði fyrir innflutning á um 20 kílóum af fíkniefnum í apríl í fyrra. 27. janúar 2016 10:18 Peð nýkomið af geðdeild sem höfuðpaurar fórnuðu Bjarni Hauksson, nýskipaður verjandi Atla Freys Fjölnissonar, telur eðlilegt að milda dóm skjólstæðings síns úr fimm árum í tvö. Ásetningur sé með minnsta móti og fordæmi sem kalli á vægari dóm. 27. janúar 2016 12:14 Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Sjá meira
Ætla að hlýða á rök verjenda um frestun vegna lögreglufulltrúans Málflutningur í máli ríkissaksóknara á hendur hollenskri konu og íslenskum karlmanni mun fara fram næstkomandi miðvikudag í Hæstarétti. 22. janúar 2016 10:45
Krefst þess að dómurinn yfir Mirjam verði staðfestur Hulda María Stefánsdóttir, saksóknari hjá ríkissaksóknara, fer fram á að ellefu ára dómur yfir hinni hollensku Mirjam Foekje van Twuijver úr héraði verði staðfestur. 27. janúar 2016 09:20
Vill að Hæstiréttur nýti tækifærið og hvetji burðardýr til samvinnu með lögreglu Björgvin Jónsson, verjandi Mirjam Foekje van Twuijver, telur fulla ástæðu til að milda ellefu ára dóm sem hún hlaut í héraði fyrir innflutning á um 20 kílóum af fíkniefnum í apríl í fyrra. 27. janúar 2016 10:18
Peð nýkomið af geðdeild sem höfuðpaurar fórnuðu Bjarni Hauksson, nýskipaður verjandi Atla Freys Fjölnissonar, telur eðlilegt að milda dóm skjólstæðings síns úr fimm árum í tvö. Ásetningur sé með minnsta móti og fordæmi sem kalli á vægari dóm. 27. janúar 2016 12:14