Hann er enn að mynda, en á meðal þeirra sem Mick hefur myndað í gegnum tíðina eru Queen, David Bowie, Syd Barrett, Lou Reed, Iggy Pop, Blondie, Snoop Dogg, The Killers og svo mætti lengi telja. Af öllum þeim listamönnum sem Mick vann með var samband hans við David Bowie eitt það farsælasta.
Mick og David Bowie voru vinir og tók hann fjölmargar myndir af David sem eru orðnar þekktar.
Hann tók til dæmis myndir fyrir umslögin utan um nokkrar af plötum Bowies, ásamt því að hafa tekið upp og leikstýrt nokkrum þekktum tónlistarmyndböndum hans, við lögin Space Oddity og Life on Mars. „Í gamla daga, í kringum árið 1970, var ég að skrifa greinar fyrir tímarit sem fylgdu myndunum mínum, þetta var svona pakkadíll til að spara fyrirtækjunum peninga, því ég gat skrifað svolítið eftir að hafa verið í Cambridge-háskóla. Einn daginn fékk ég kynningareintak af plötunni Hunky Dory og fór á tónleika með David Bowie í kjölfarið í Birmingham Town Hall, það voru 400 manns á tónleikunum. Eftir tónleikana fór ég baksviðs og heilsaði David, ég man að hann sagði þá: „Ég kann vel við nafnið þitt.“ Ég tók myndir baksviðs og af honum á sviðinu, það var mjög töfrandi að sjá hann á sviðinu,“ segir hann, spurður út í sín fyrstu kynni af Bowie. Mick, sem er fæddur árið 1948, var skírður Michael David Rock. Bowie var hrifinn af nafni Micks en Bowie var sjálfur skírður David Robert Jones en breytti sínu. „Já, hann breytti nafninu sínu því honum var ruglað saman við Davy Jones úr The Monkees.“

Þegar Mick og David hittust fyrst náðu þeir vel saman og þá sérstaklega vegna þess að þeir höfðu svipaðan tónlistarsmekk. „Það sem hjálpaði til, var að ég tók einnig viðtal við hann og þess vegna ræddum við mikið saman. David var mikill aðdáandi Syds Barrett og ég þekkti hann, hafði tekið viðtal við hann og myndað hann. Ég var aðdáandi Velvet Underground og The Stooges, sem voru lítt þekktar hljómsveitir þá því þær höfðu ekki selt mikið af plötum. David hafði hitt Lou Reed og Iggy Pop í New York, það tengdi okkur enn frekar og ég kynntist mörgum í gegnum David,“ segir Mick um fyrstu samskiptin.
Urðu þeir miklir vinir og fór David að bjóða Mick á tónleika og Mick fór að mynda hann oftar. Mick starfaði sem ljósmyndari Bowies á árunum 1972 og 1973 og átti sinn þátt í því að gera Ziggy Stardust að þeirri goðsögn sem þetta annað sjálf Davids Bowie í raun er.
Mick hefur ávallt farið sínar leiðir í listsköpun sinni. „Mér var saman hvað útgáfufyrirtækin og blöðin sögðu eða vildu. Ég gerði það sem ég vildi og ég vildi að listamaðurinn fílaði myndirnar.“

Ljósmyndarinn hefur gefið út fjölda bóka og þá hefur hann einnig farið um allan heim og haldið sýningar en hefur ekki enn komið til Íslands, þó svo að hann hafi áhuga á því. Segist hann treysta á að félagi hans útvarpsmaðurinn Smutty Smiff, aðstoði hann við að koma til landsins einn daginn.

David Bowie
Lou Reed
Iggy Pop
Queen
The Sex Pistols
The Ramones
Blondie
Rocky Horror Picture Show
Snoop Dogg
The Killers
Ellie Goulding
Alicia Keys
Michael Buble
Daft Punk
Mötley Crüe

Syd Barrett - The Madcap Laughs
Lou Reed - Transformer og Coney Island Baby
Iggy and the Stooges - Raw Power
Queen - Queen II en sú mynd var svo endurspegluð í tónlistarmyndbandinu við lagið Bohemian Rhapsody. Þá tók hann einnig myndina á plötunni Sheer Heart Attack .
The Ramones - End of the Century
Joan Jett - I Love Rock ’n’ Roll