„Toronto er stærsta leikhúsborg Kanada og valnefndin er samsett af bransafólki frá allri Norður-Ameríku svo það er virkilega gaman að fá viðurkenningu frá þessu fólki. Þetta er einstaklega gott fyrir okkur þar sem við erum íslenskur hópur með breska þjóðsögu og fáum svona flott verðlaun,“ segir Gísli Örn Garðarsson hæstánægður með verðlaunin.

„Já, svo sannarlega, það eru alls konar viðræður í gangi og er sýningin líklega að fara til Bandaríkjanna á næstunni. Það stóð alltaf til að sýningin færi á Broadway og mætti eiginlega segja að hún sé eins og flugvél sem bíður eftir lendingarplássi þar. Í dag eru þeir jafnvel að skoða að sýna Hróa hött á fleiri stöðum í Bandaríkjunum svo það er nóg fram undan hjá okkur,“ segir hann.
Í hjarta Hróa hattar er sýnd í Þjóðleikhúsinu og er Gísli Örn ánægður með viðtökurnar. „Það er frábært hvað sýningin er að fá góð viðbrögð hérna heima. Þó að Hrói höttur sé ekki okkar þjóðsaga virðist sýningin hafa snert einhvern góðan streng og það mætti segja að sýningin nái til breiðs hóps og virki fyrir alla, bæði þá sem eru að fara með börn og unglinga í leikhús og líka fyrir fullorðna,“ segir Gísli Örn.