Ætla að hlýða á rök verjenda um frestun vegna lögreglufulltrúans Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. janúar 2016 10:45 Mirjam Foekja van Twuijver hlaut ellefu ára dóm. Verði dómurinn staðfestur í Hæstarétti verður um að ræða þyngsta fíkniefnadóm sem fallið hefur hér á landi. Vísir
Málflutningur í máli ríkissaksóknara á hendur hollenskri konu og íslenskum karlmanni mun fara fram næstkomandi miðvikudag í Hæstarétti. Verjendur höfðu farið fram á frestun um ótiltekin tíma í ljósi þess að lögreglufulltrúi sem stýrði aðgerðum sem miður fóru á vettvangi, og leiddu til ótímabærrar handtöku í stað þess að tálbeituaðgerð héldi áfram, sætir rannsókn héraðssaksóknara eftir alvarlegar ásakanir um árabil um óhreint mjöl í pokanum. Fulltrúanum hefur verið vikið tímabundið úr starfi á meðan rannsókn á honum stendur yfir. Í bréfi Hæstaréttar til verjendanna, Björgvins Jónssonar sem er verjandi Mirjam Foekje Van Twuijver, og Vilhjálms H. Vilhjálmssonar sem er verjandi Atla Freys Fjölnissonar, kemur fram að málið verði til meðferðar miðvikudaginn 27. janúar. Verjendur fái hins vegar tækifæri til að sýna fram á að tilefni sé að fresta málinu vegna yfirstandandi rannsóknar á hendur lögreglufulltrúanum. Dómarar í Hæstarétti ákveða hvort tilefni sé til að fresta málinu vegna rannsóknarinnar á hendur lögreglufulltrúanum.Vísir/GVA Ellefu ár af tólf mögulegum Málið er eitt umfangsmesta fíkniefnamál sem upp hefur komið hér á landi. Mirjam Foekje Van Twuijer fékk ellefu ára fangelsisdóm í október þrátt fyrir að hafa veitt lögreglu umtalsverða aðstoð í nokkra daga við fyrrnefnda tálbeituaðgerð í apríl í fyrra. Allt virtist ganga samkvæmt áætlun þegar Atli Freyr, sem veitti meintum fíkniefnum móttöku, var handtekinn fyrir utan Hótel Frón á Laugavegi í stað þess að honum yrði veitt eftirför. Hin meintu fíkniefni voru í raun gerviefni og eftirfararbúnaður sem voru komin um borð í bílinn þegar Atli Freyr var handtekinn. Sérsveitarmaður framkvæmdi handtökuna en yfirmenn sérsveitar og lögreglu eru sammála um að það hafi ekki haft áhrif á úrslitaframgang málsins að Atli Freyr var handtekinn utan við hótelið. Sérsveitarmenn eru þekktir fyrir að fylgja fyrirmælum og skipunum. Ómögulegt er að draga af því aðra ályktun en að alltaf hafi staðið til að handtaka Atla Frey þó það hafi gerst einhverjum sekúndum of fljótt. Hvers vegna til stóð að handtaka Atla Frey í stað þess að fylgja honum eftir er spurning sem enn hefur fengist svar við þótt tæpir tíu mánuðir séu liðnir frá því að aðgerðin fór út um þúfur. Friðrik Smári neitar að tjá sig um hvort hann hafi fengið athugasemdir við störf lögreglufulltrúans utan þess þriggja vikna tímabils sem hann tilgreindi í yfirlýsingu sinni til Vísis í síðustu viku.Vísir/Anton Brink Endurteknar athugasemdir en fátt um viðbrögð yfirmanna Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hefur fullyrt að lögreglufulltrúinn, sá er sætir rannsókn og stýrði aðgerðum á vettvangi, hafi ekkert haft með það að gera að aðgerðin fór út um þúfur. Hefur hann vísað til þess að bilun í fjarskiptabúnaði hafi haft eitthvað með það að gera að svo fór sem fór. Friðrik Smári vill þó ekki tjá sig um hver seinasta skipun hafi verið á vettvangi utan við Hótel Frón áður en Atli Freyr var handtekinn. Friðrik Smári hefur staðfest við Vísi að gerðar hafi verið athugasemdir við störf lögreglufulltrúans á þriggja vikna tímabili í mars í fyrra. Spurður hvort samstarfsmenn lögreglufulltrúans hafi ekki einnig gert alvarlegar athugasemdir utan þess tíma neitar Friðrik Smári að tjá sig um það. Karl Steinar Valsson var yfirmaður fíkniefnadeildar á árunum 2007 til 2014.Vísir/Ernir Fullyrti um rannsókn sem aldrei fór fram Þá fullyrti Karl Steinar Valsson snemma árs 2012, eftir háværar athugasemdir á hendur lögreglufulltrúanum, að hans mál hefði verið rannsakað og enginn fótur reynst fyrir ásökununum. Engin rannsókn fór fram en Karl Steinar, yfirmaður fulltrúans og náinn samstarfsmaður, skilaði eigin greinargerð vegna málsins. Á grundvelli hennar mátu Jón H.B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri, og Friðrik Smári að ekkert tilefni væri til þess að óháður aðili væri fenginn til að rannsaka málið. Vel má velta fyrir sér hvaða dóm Mirjam hefði fengið hefði aðstoð hennar, sem óumdeilt er að hún veitti, leitt til handtöku innflutningsaðila að efnunum. Refsiramminn í málaflokknum er tólf ár en burðardýrið fékk ellefu ára dóm. Atli Freyr, sem veitti gerviefnunum móttöku, hlaut fimm ára dóm. Málflutningur fer fram í Hæstarétti á miðvikudaginn. Að neðan má sjá tímalínu um málið frá komu hollensku mæðgnanna til Íslands í apríl.
Leki og spilling í lögreglu Tengdar fréttir Handtakan furðulega: Hollenska móðirin og sendisveinninn mæta örlögum sínum Framundan er málsmeðferð í Hæstarétti í máli ríkissaksóknara á hendur hollenskri móður og íslenskum karlmanni í umfangsmiklu fíkniefnamáli sem kennt hefur verið tálbeituaðgerð við Hótel Frón sem misfórst hrapalega. 11. janúar 2016 09:00 Greinargerðin svo afdráttarlaus að ekki var talin ástæða til að vísa málinu til ríkissaksóknara „Það voru sögusagnir um að maðurinn væri ekki traustins verður en þær sögusagnir voru um atriði sem ekki var hægt að festa hendi á,“ segir Jón H.B. Snorrason. 14. janúar 2016 18:00 „Ásakanirnar voru það alvarlegar að ekki var annað hægt en að vísa málinu til ríkissaksóknara“ Nánasti yfirmaður lögreglufulltrúans taldi ekkert hæft í ásökunum 2012. Þremur árum síðar var embætti ríkislögreglustjóra á allt annarri skoðun. 15. janúar 2016 10:30 Svarar því ekki hver seinasta skipun var áður en sendisveinninn var handtekinn við Hótel Frón Friðrik Smári Björgvinsson vill ekki tjá sig um það hvort hann hafi verið meðvitaður um ásakanir á hendur lögreglufulltrúa utan þess tíma sem hann tilgreinir í yfirlýsingu sem hann sendir frá sér. 15. janúar 2016 15:46 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira
Handtakan furðulega: Hollenska móðirin og sendisveinninn mæta örlögum sínum Framundan er málsmeðferð í Hæstarétti í máli ríkissaksóknara á hendur hollenskri móður og íslenskum karlmanni í umfangsmiklu fíkniefnamáli sem kennt hefur verið tálbeituaðgerð við Hótel Frón sem misfórst hrapalega. 11. janúar 2016 09:00
Greinargerðin svo afdráttarlaus að ekki var talin ástæða til að vísa málinu til ríkissaksóknara „Það voru sögusagnir um að maðurinn væri ekki traustins verður en þær sögusagnir voru um atriði sem ekki var hægt að festa hendi á,“ segir Jón H.B. Snorrason. 14. janúar 2016 18:00
„Ásakanirnar voru það alvarlegar að ekki var annað hægt en að vísa málinu til ríkissaksóknara“ Nánasti yfirmaður lögreglufulltrúans taldi ekkert hæft í ásökunum 2012. Þremur árum síðar var embætti ríkislögreglustjóra á allt annarri skoðun. 15. janúar 2016 10:30
Svarar því ekki hver seinasta skipun var áður en sendisveinninn var handtekinn við Hótel Frón Friðrik Smári Björgvinsson vill ekki tjá sig um það hvort hann hafi verið meðvitaður um ásakanir á hendur lögreglufulltrúa utan þess tíma sem hann tilgreinir í yfirlýsingu sem hann sendir frá sér. 15. janúar 2016 15:46