Stolnar stundir að yrkja Magnús Guðmundsson skrifar 8. janúar 2016 11:30 Ragnheiður Guðbjargar og Hrafnkelsdóttir ritaði inngang að ljóðabók ömmu sinnar. Visir/GVA
Nýlega kom úr safn ljóða eftir Guðrúnu Stefánsdóttur frá Fagraskógi. Guðrún var fædd árið 1893, þriðja í röð sjö systkina og þar á meðal var hið þjóðþekkta ljóðskáld Davíð Stefánsson. Bókin er gefin út í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna en að útgáfunni standa afkomendur og velunnarar. Inngang skrifar Ragnheiður Guðbjargar Hrafnkelsdóttir en Guðrún var amma Ragnheiðar. „Amma var hugrökk og sjálfstæð kona. Hún naut ekki mikillar menntunar en kom reyndar af frekar vel stæðu fólki miðað við aðstæður þess tíma. Henni tókst þó að koma sér í Kvennaskólann, inn á fjórða ár og lauk prófi árið 1913. Þetta þótti ágætis menntun fyrir konu á þeim tíma. Hún giftist Jóni Magnússyni skáldi og beyki árið 1930 og eignuðust þau þrjár dætur á árunum 1930 til 1935 en árið 1940 stofnaði hún svo Nýtt kvennablað ásamt Jóhönnu Þórðardóttir og Maríu Knudsen. Blaðinu var ætlað að vera vettvangur og málsvari íslenskra kvenna í baráttu þeirra fyrir auknum réttindum. Einnig var mikilvægur þáttur í útgáfu blaðsins að birta ljóð og sögur eftir konur. Þarna voru íslenskir kvenrithöfundar og skáld að stíga sín fyrstu skref og þar á meðal Guðrún frá Lundi. Dalalíf birtist til að mynda fyrst sem framhaldssaga í þessu blaði og varð þar mjög vinsæl. Konurnar sem ritstýrðu blaðinu með henni féllu svo báðar frá þannig að eftir 1946 þá stóð hún ein í útgáfunni. Hún var að reyna að lifa af þessu því hún missti manninn sinn 1944 og stóð uppi sem ekkja með þrjár ungar dætur. En hún kláraði sig alltaf alveg rosalega vel í öllu og tókst svona flest sem hún ætlaði sér.Hún gaf sér svo tíma til þess að yrkja en það voru stolnar stundir. Magnið af ljóðum er því ekki mikið og handrit engin. Ég safnaði saman því sem hún birti en svo fann ég t.d. eitt kvæði sem var skrifað á umslag og því var haldið til haga vegna þess að það átti að geyma bréfið.“ Ragnheiður segist velta því fyrir sér hvort amma hennar hafi litið á sig sem skáld. „Hún hefur eflaust ætlað sér það þegar hún var ung. Maðurinn hennar var þekkt skáld á sínum tíma og vinur Davíðs bróður hennar. En þetta eru sömu ræturnar.“
Menning Mest lesið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning Fleiri fréttir Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Í jólaskapi í júní Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Hilmir Snær stígur einn á svið Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak David Hockney er látinn Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Sjá meira