Lífið

Búin að koma sér vel fyrir í LA

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Sveitin vinnur að nýrri plötu sem hún vonast til að gefa út fyrir jól.
Sveitin vinnur að nýrri plötu sem hún vonast til að gefa út fyrir jól. Mynd/Aðsend
Hljómsveitin Steed Lord er nú hér á landi en meðlimir hennar munu stíga á svið á Arnarhóli á laugardaginn eftir Gay Pride-gönguna.

Vikuna eftir fljúga þau til Kaupmannahafnar þar sem þau verða aðalnúmerið á Gay Pride-göngunni þar. Eins og flestir vita hafa hljómsveitarmeðlimir búið í Los Angeles seinustu sex árin og einbeitt sér að tónlist og Svala hefur verið að hanna föt fyrir fatamerkið sitt, sem byrjað var fyrir stuttu að selja á Asos Marketplace.

Stóru plötufyrirtækin áhugasöm

Þau eru nú í miðjum upptökum fyrir nýju plötuna sína sem þau ætla að reyna að gefa út fyrir jól en vegna mikils áhuga plötufyrirtækja á útgáfunni gæti því seinkað.

„Við höfum alltaf verið svo sjálfstæð og gert allt sjálf. Samið okkar eigin tónlist og tekið upp okkar eigin myndbönd þannig að ef við færum að skrifa undir hjá plötufyrirtæki þá þyrfti það að passa vel saman. Hingað til höfum við ekki fundið fyrirtæki sem hefur hentað okkur. Umboðsmaðurinn okkar hérna úti er að þreifa fyrir með að gefa plötuna okkar út hjá plötufyrirtæki, við erum í viðræðum við nokkur fyrirtæki í LA en það kemur allt í ljós seinna á árinu,“ segir Svala.







Svala sendi á dögunum frá sér nýja fatalínu frá merkinu sínu, Kali.Mynd/Aðsend
Ný plata á leiðinni

Það eru liðin þrjú ár frá seinustu plötu sveitarinnar og nú verður öllu tjaldað til.

„Við erum að leggja allt í þessa plötu og erum búin að gefa okkur góðan tíma í að semja lögin, einnig erum við að vinna með frábærum upptökustjóra sem hefur unnið með öllum frá Santana til Jennifer Lopez og er bara frábær náungi og hefur mikla trú á þessari plötu með okkur. Upptökurnar fara fram í stúdíóinu sem Daft Punk vann síðustu plötu sína í þannig að við erum í svokolluðu syntha-himnaríki. Svo erum við auðvitað alltaf að spila inn á milli og svo verð ég eitthvað að fljúga á milli fyrir The Voice-þættina í haust.“

Fatalínan á Asos

Svala sendi nýlega frá sér sjöttu fatalínuna undir nafninu Kali en nýlega var byrjað að selja hana á Asos Marketplace sem er ein stærsta netverslun fyrir ungt fólk í heiminum.

„Ég tel mig ekki vera fatahönnuð en ég hef verið að sauma föt frá því að ég var lítil. Ég hanna línuna sjálf en svo vinn ég náið með klæðskera sem teiknar sniðin. Svo fer ég í efnaleiðangur hér í LA og þetta er svo allt framleitt hér."

Ekki á leiðinni heim

Hljómsveitina Steed Lord skipa Svala, Einar maðurinn hennar og Eddi bróðir hans. Svala og Einar búast ekki við því að flytja heim frá Los Angeles í bráð enda lítið annað sem togar þau heim en fjölskyldan. „Ég hef verið með annan fótinn hérna frá 1999 og við erum búin að koma okkur vel fyrir. Við erum komin með virkt tengslanet og eigum marga vini og við sjáum alveg fyrir okkur að verða gömul hérna.“


Tengdar fréttir

Svala Björgvins sjóðheit í Kali

Söngkonan Svala Björgvinsdóttir hefur í nógu að snúast í LA um þessar mundir og hefur nú hannað sína aðra fatalínu undir nafninu Kali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.