Gríska hlutabréfavísitalan féll við opnun kauphallar Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 4. ágúst 2015 07:00 Maður smellir mynd af miklu falli hlutabréfa í Grikklandi þegar kauphöllin í Aþenu var opnuð á ný eftir fimm vikna lokun. nordicphotos/afp
Gríska hlutabréfavísitalan hríðféll þegar kauphöllin í Aþenu var opnuð í gær. Kauphöllin hafði verið lokuð undanfarnar fimm vikur frá því gjaldeyrishöftum var komið á þegar skuldakreppa ríkisins stóð sem hæst. Einungis nokkrum mínútum eftir að opnað var fyrir viðskipti féll vísitalan um 22,87 prósent. Þegar leið á daginn batnaði staðan þó örlítið en þegar lokað var fyrir viðskipti stóð lækkunin í 16,23 prósentum. Markaðsvirði stærstu banka Grikklands, Píreus-banka, Landsbankans, Alpha-banka og Euro-banka, lækkaði talsvert, eða um þrjátíu prósent. Meiri lækkun er ekki leyfileg. Til samanburðar við fall vísitölunnar í gær má nefna að mesta fall vísitölu á einum degi var fall hinnar bandarísku Dow Jones þann nítjánda október 1987, á hinum svokallaða svarta mánudegi. Þá féll Dow Jones um 22,61 prósent. Fall vísitölunnar var þó fyrirsjáanlegt. „Það eru engar líkur á að nokkur hlutabréf hækki á morgun,“ sagði fjárfestirinn Takis Zamanis við fréttastofu Reuters á sunnudaginn. Stjórnarformaður kauphallarinnar, Kostas Botopoulos, tjáði sig um opnun markaðarins við fjölmiðla í gær. „Það er mjög mikilvægt að við séum að opna. Auðvitað búumst við við erfiðu ástandi en við verðum á staðnum til að fylgjast með því sem fram fer,“ sagði hann. Auðvitað búumst við við miklu álagi. Markaðurinn mun bregðast við þessari löngu lokun. Við munum ekki láta einn dag slá okkur út af laginu. Við verðum að bíða til vikuloka til að sjá hvernig ástandið verður,“ sagði Botopoulos. Samkvæmt skilyrðum grísku ríkisstjórnarinnar og Seðlabanka Evrópu fyrir opnuninni máttu grískir fjárfestar ekki kaupa hlutabréf fyrir peninga af bankareikningum sínum, einungis reiðufé. Þau skilyrði eru í samræmi við höft á lausafjárúttektum grískra ríkisborgara, en einungis er heimilt að taka 420 evrur út úr bönkum á viku. Erlendir fjárfestar mega hins vegar fjárfesta fyrir það fé sem þeir eiga. Þegar kauphöllinni var lokað í lok júní óttuðust margir algjört gjaldþrot Grikklands og brotthvarf þess af evrusvæðinu. Nú eru hins vegar samningaviðræður í gangi um 86 milljarða evra neyðaraðstoð fyrir gríska ríkið frá Seðlabanka Evrópu og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Ólíklegt þykir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn taki þátt í neyðaraðstoðinni þar sem skilyrði sjóðsins er umfangsmikil niðurfelling hluta skulda Grikkja. Evrópusambandið er andvígt niðurfellingunni en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir hana nauðsynlega.
Grikkland Mest lesið Vænta þess að eigendur hússins leysi málið Viðskipti innlent Milla ráðin rekstrarstjóri hjá Ólafi Darra og félögum Viðskipti innlent „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Atvinnulíf Leggja til lagabreytingu sem leysir af penna og pappír Viðskipti innlent Um fimmtíu verið sektuð fyrir að greiða ekki rétt fargjald Neytendur Fólk muni eiga meira eftir í buddunni um mánaðamótin Neytendur „Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt“ Atvinnulíf Fékk milljón til baka vegna bílaleigubíls sem varð fyrir eldingu Neytendur 37,5 milljarðar í hagnað og nítján í arð Viðskipti innlent Kolefnisförgunarstöð geti skapað Ölfusi störf og tekjur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreind fyrir klink veldur Bandaríkjamönnum hausverk Kínversk kúvending leiddi til hruns vestanhafs Enn deila Musk og Altman MrBeast gerir tilboð í TikTok Eftirmaður Norman yfir LIV-mótaröðinni fundinn Höfða mál gegn Musk vegna kaupanna á Twitter Vilja banna farþegum að fá sér þriðja drykkinn á flugvellinum Meta birtir óumbeðnar gervigreindarmyndir af notendum Instagram Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Sjá meira