Bíó og sjónvarp

Stelpugrín er reyndar fyndið

Guðrún Ansnes skrifar
Stöllurnar bregða sér í allra kvikinda líki í þáttunum og hér sjást þær í gervum bandarískra ferðamanna.
Stöllurnar bregða sér í allra kvikinda líki í þáttunum og hér sjást þær í gervum bandarískra ferðamanna.
„Þetta eru grínþættir sem upphaflega áttu að vera leikrit. Svo var þetta svo sketsalegt að við ákváðum að fara frekar með þetta í sjónvarpið,“ segir Júlíana Sara Gunnarsdóttir, annar helmingur tvíeykisins Þær tvær.

Grínþættirnir Þær tvær fara í loftið á Stöð 2 í lok júní en um ræðir grínþáttaröð upp á sex þætti sem Júlíana skrifar og leikur í ásamt Völu Kristínu Eiríksdóttur. 

„Við grínumst um allt á milli himins og jarðar í þessum þáttum. Leyfum fólki að kynnast persónum vel og sköpum þannig tengsl,“ segir Júlíana og bætir við að týpurnar séu mikið til fengnar lánaðar úr daglegu lífi þeirra beggja: „Það þekkja allir eitthvað í þessum persónum,“ segir hún og skellir upp úr.

Aðspurð um hvort þær stöllur hafi meðvitað ætlað sér að standa uppi í hárinu á karllægum heimi grínista segir Júlíana svo vera: „Kynjaskiptingin var okkur mjög hugleikin og við ákváðum strax að við vildum hafa þetta okkar, við stelpurnar með okkar grín.“

Báðar eru þær menntaðar leikkonur, Júlíana frá Rose Bruford í Bretlandi en Vala er að útskrifast frá Listaháskóla Íslands á næstunni. Verða þættirnir sex talsins. Þær eru að vonum spenntar fyrir frumrauninni og iða í skinninu eftir viðbrögðum áhorfenda.

„Vala fer svo að vinna í Borgarleikhúsinu í sumar og ég ætla að eignast barn, gifta mig og flytja,“ segir Júlíana hin kátasta í lokin.

Hér fyrir neðan má sjá viðtal við Júlíönu og Völu úr Íslandi í dag þar sem meðal annars eru sýnd nokkur atriði úr þættinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.