Það væri líklega ekki í frásögur færandi enda hæpið að kaup á einni plötu geti talist fréttnæmt. En hvað ef platan sem hann keypti var eina eintakið sem til er af þeirri plötu sem um ræðir?
Það er nákvæmlega það sem gerðist. Nýjasta plata Wu-Tang Clan var aðeins framleidd í einu einasta eintaki og seld til hæstbjóðanda á uppboði. Martin Shkreli er því eini maðurinn sem getur hlustað á nýjustu plötu Wu-Tang Clan.
Sagan er nokkuð krassandi og við sögu koma Shkreli sjálfur, meðlimir Wu-Tang Clan, Cher, fyndinn tístari og meira að segja Bill Murray. Vísir kíkti á um hvað ein skrýtnasta frétt ársins 2015 fjallar.

Wu-Tang Clan er líkt og flestir ættu að vita, ein áhrifamesta rappsveit allra tíma. Frumraun þeirra Enter the Wu-Tang (36 Chambers) kom út árið 1993 og síðan hafa meðlimirnir varla horft í baksýnisspegilinn. Sveitin er fjölbreytt og meðlimir hennar hafa hafa verið ansi margir. Flestir ættu þó að kannast við nöfn eins og RZA, Method Man, Ghostface Killah og Ol'Dirty Bastard sem allir meikuðu það sem meðlimir Wu-Tang Clan.
En, á tíunda áratug síðustu aldar var ekki til neitt sem hét streymi og internetið var ennþá bara eitthvað flipp. Þrátt fyrir að hafa gefið út plötur og tónlist á undanförnum árum hefur meðlimum Wu-Tang ekki tekist að slá í gegn á nýjan leik eins og þeir gerðu á tíunda áratugnum. Plata þeirra frá árinu 2014 seldist til að mynda aðeins í 60.000 eintökum.
Liðsmenn Wu-Tang eru hinsvegar listamenn og í stað þess að reyna finna upp einhverja nýja leið til þess að streyma tónlist sinni eða til þess að sigra hinn nýja heim tónlistardreifingar fundu þeir upp á einhverju glænýju. Í raun fóru þeir algjörlega andstæða leið við það sem allir gera nú til dags:
Þeir gerðu aðeins eitt eintak af nýjustu plötu sinni Once Upon a Time in Shaolin.
Hvergi er hægt að hlusta á hana á netinu. Til þess að hlusta á plötuna þarf hreinlega að nálgast þetta eina eintak sem til er. Og það var ansi vel lagt í það eintak. RZA kallaði á alla þá sem komið hafa að Wu-Tang Clan (og eru enn á lífi, blessuð sé minning ODB) og fjölda gesta, m.a. Cher. Úr varð þessi glæsigripur:
.@MartinShkreli is the new owner of @WuTangClan's "Once Upon a Time in Shaolin" album.
https://t.co/j0AtZBPjR1 pic.twitter.com/3703rLolkO
— HYPEBEAST (@HYPEBEAST) December 10, 2015
Eins og áður sagði ákváðu félagarnir í Wu-Tang, í stað þess að elta strauminn og semja við Spotify eða Apple, að gera aðeins eitt eintak og selja það á uppboði til hæstbjóðenda. Sá hinn sami myndi eignast plötuna og mætti gera við hana það sem honum sýndist.
Einu skilyrðin sem sett voru þau að kaupandinn mætti ekki selja plötuna til dreifingar næstu 88 árin.
Það þýddi að kaupandinn gæti m.a. hlustað á plötuna í einrúmi, keyrt yfir hana á bíl eða dreift henni frítt á netinu. Hann átti plötuna, eina eintakið sem framleitt yrði og réði því alfarið hvað yrði um lögin á henni. Það eina sem hann mátti ekki gera var að selja plötuna áfram til dreifingar.
Platan sjálf er ansi vegleg, 31 lag í einstaklega fallegum kassa í fylgd 174 blaðsíðna bók með textum og öðru góðgæti. Ekkert slor enda var hlustunarpartýið gríðarlega vel sótt og eftirspurnin mikil.

Einn þeirra sem mætti var milljarðamæringurinn Martin Shkreli. Hann er um það bil hataðasti milljarðamæringur heimsins í dag. Hann á lyfjafyrirtækið Turing Pharmaceutical sem nýverið keypti lyfið Daraprim.
Það væri svo sem ekki merkilegt enda ganga lyfjaeinkaleyfi kaupum og sölum á hverjum degi. Það sem er merkilegt við Shkreli, sem er fyrrverandi framkvæmdastjóri umdeilds vogunarsjóðs, er það að hann hækkaði verðið á lyfinu upp úr öllu valdi.
Lyfjaskammtur af Daraprim, sem notað er af alnæmissjúklingum, kostaði áður 13,50 Bandaríkjadali, um 1.700 krónur, en eftir kaup lyfjafyrirtækis Shkreli hækkað verðið í 750 Bandaríkjadali, um 97 þúsund krónur. Það er hækkun upp á 5500 prósent. Á einni nóttu.
Hann eignaðist plötuna á tvær milljónir dollara og má nú því gera það sem honum sýnist við plötuna. Miðað við forsögu þessa manns má allt eins búast við því að hann keyri yfir hana, bara svona til þess að gera heiminn að aðeins verri stað.
Within 10 years, more than half of all rap/hip-hop music will be made exclusively for me. Don't worry--I will share some of it.
— Martin Shkreli (@MartinShkreli) December 13, 2015
Kannski gerir hann það ekki neitt en fljótlega eftir að staðfest var að Martin Shkreli hafði eignast plötuna birtist þetta tíst:
Forget the $2M, this is easily the most interesting part of the whole deal between Wu-Tang and Martin Shkreli. pic.twitter.com/5nSshXhjnJ
— Rob Wesley (@eastwes) December 9, 2015
„Kaupandi samþykkir að hvenær sem er á hinu 88 ára tímabili sem hann á plötuna sé seljandanum löglega og án refsingar heimilt að skipuleggja og reyna að framkvæma í eitt skipti rán til þess að stela aftur Once Upon a Time in Shaolin. Takist það mun eignaréttur flytjast aftur til seljandans. Aðeins virkir meðlimir í Wu-Tang Clan og/eða Bill Murray mega fremja ránið.“
AÐEINS BILL MURRAY EÐA WU-TANG CLAN MEGA FREMJA RÁNIÐ!
Væri þetta sannleikanum samkvæmt væri þetta efni í einhverja klikkuðustu frétt ársins og mögulega einhverja stórkostlega bíómynd.
Eðlilega sprakk internetið yfir þessum fréttum.
100% convinced Wu Tang sold to a supervillain so that we could all enjoy the story of how they stole the album back with Bill Murray.
— Kylo Ram (@ramtower) December 9, 2015
@eastwes @DangerGuerrero if someone made a movie about that heist caper, it would be the best movie of all time.
— Mo Ryan (@moryan) December 9, 2015
Sagan var hinvegar góð, svo góð, að RZA sjálfur tísti um að mögulega þyrftu meðlimir Wu-Tang að heyra í Bill Murray.
We're really getting the urge to call Bill Murray.
— RZA! (@RZA) December 11, 2015
Þangað til er því Martin Shkreli eini maðurinn sem getur hlustað á Once Upon a Time in Shaolin.