Wolff: Þýðir lítið að ætla að róa Rosberg niður Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 11. október 2015 15:30 Lewis Hamilton fékk sértakan loðhatt að hætti Rússa eftir keppnina. Vísir/Getty
Lewis Hamilton vann sína 42. keppni í Formúlu 1 í dag. Mercedes er hugsanlega heimsmeistari, það fer eftir ákvörðun dómaranna, hvort þeir refsa Kimi Raikkonen. Hver sagði hvað eftir keppnina? „Auðvitað hefði ég viljað keppa við Nico (Rosberg). Það er vont fyrir liðið að missa annan bílinn. Ég hefði viljað hafa Sebastian (Vettel) nær til að keppa,“ sagði Hamilton á verðlaunapallinum. „Hefði verð gaman að geta ógnað Lewis meira. Það virtist þó ómögulegt. Auðvitað hefðum við viljað hafa báða bílana í verðlaunasæti,“ sagði Vettel sem varð annar á Ferrari. „Ég er ánægður með þetta. Þetta var svolítið erfitt undir lokin og ég hélt ég hefði tapað þessu en það er frábært að ná öðru verðlaunasæti fyrir Force India,“ sagði Sergio Perez sem varð þriðji á Force India. „Ég reyndi að taka fram úr og þegar ég var búinn að ákveða að reyna þá var ekki aftur snúið og hann sá mig ekki koma. Ég endaði þess vegna á honum. Ég veit ekki hvort mér verður refsað, ég er ekki dómari,“ sagði Kimi Raikkonen sem var að reyna að taka fram úr Valtteri Bottas en keyrði hann út úr keppninni í staðinn. „Ég held ekki að þetta hafi verið hefðbundið keppnisóhapp. Það er ömurlegt að tapa þriðja sætinu og fara héðan með engin stig. Ég er bara vonsvikinn. Mér er eiginlega sama hvort honum verður refsað. Ég fæ aldrei þessi stig aftur,“ sagði Bottas sem var allt annað en sáttur við samlanda sinn hjá Ferrari.Ferrari menn börðust af hörku innbyrðis á köflum í dag.Vísir/getty„Það bilaði eitthvað í inngjöfinni hjá Nico. Ferrari lýtur mjög vel út og það verður hörð barátta á næsta ári. Það var líka vesen á bíl Lewis. Afturvængurinn var ekki alveg nógu stöðugur. Titilbaráttan er ekki búin fyrr en hún er búin. það þýðir lítið að ætla að róa Rosberg niður núna. Hann á eftir að mæta dýrvitlaus til Texas,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes. „Það er ýmislegt að fara í gegnum hausinn á mér. Það er blandað andrúmsloft. Við þyggjum þessi úrslit. Það er gaman að ná verðlaunasæti aftur. Leitt að Nico (Hulkenberg) gat ekki klárað,“ sagði Andy Stevenson, keppnisstjóri Force India. „Við vorum eiginlega bara fyrir í upphafi. Við börðumst innbyrðis við Fernando (Alonso). Þær breytingar sem við viljum gera núna er fæstar hægt að gera á tímabilinu. Við náðum í stig,“ sagði Jenson Button sem náði níunda sæti á McLaren. „Við erum sátt við helgina. Þetta var jákvætt, við höfum loksins náð að koma báðum bílum í stigasæti. Vonandi náum við frekari framförum í Bandaríkjunum,“ sagði Alonso sem náði síðasta stigasætinu á McLaren bílnum. „Ég er í lagi, ég gæti ekki hlaupið maraþon akkurat núna en annars er ég góður. Ég sleppti stýrinu og spennti vöðvana og lokaði augunum og beið eftir að þetta kláraðist. Við erum að rannsaka orsök óhappsins,“ sagði Romain Grosjean sem lenti í hörðum árekstri við varnarvegg á Lotus bílnum.Hér fyrir neðan má finna úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti.
Formúla Tengdar fréttir Rosberg á ráspól í Rússlandi Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól í tímatökunni á Sochi brautinni í dag. Lewis Hamilton varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. 10. október 2015 12:32 Hulkenberg og Massa fljótastir á blautum æfingum Nico Hulkenberg á Force India var fljótastur á fyrri æfingu dagsins í Rússlandi. Felipe Massa á Williams var fljótastur á seinni æfingu dagsins. 9. október 2015 23:00 Hamilton: Ég var ekkert sérstaklega að leita eftir ráspól Nico Rosberg náði í mikilvægan ráspól í Rússlandi í dag. Titilbaráttan lifir enn ágætu lífi. Hver sagði hvað eftir tímatökuna? 10. október 2015 22:00 Honda klárar uppfærsluskammtana í Rússlandi Fernando Alonso, annar ökumanna McLaren-Honda liðsins mun nota ný uppfærða vél í rússneska kappakstrinum um helgina. Liðsfélagi hans, Jenson Button notar gömlu vélina. 8. október 2015 22:00 Hamilton fyrstur í mark í Rússlandi Lewis Hamilton kom fyrstur í mark á Mercedes bílnum í Rússlandi. Sebastian Vettel varð annar á Ferrari. Sergio Perez kom Force India bílnum í þriðja sæti í mark á ótrúlegan hátt. 11. október 2015 12:38 Mest lesið Sér eftir sinni hegðun og ætlar að vera áfram hjá Ajax Fótbolti „Áhugaverð vegferð að vera með tvo Njarðvíkinga að dæma“ Körfubolti Gefa Gaza allan gróðann af leik á móti ísraelsku félagi Fótbolti Booker ekki valinn og vill breyta stjörnuleiknum Körfubolti Farmiði tryggður í fjórða úrslitaleikinn í röð Handbolti Snorri Steinn hefur ekki getað horft á leikina á HM: „Það bara svíður“ Handbolti Dagskráin í dag: Íslendingar í Þýskalandi, golfmót, ruðningur og íshokkí Sport Lekur úr lofti og leik Hauka og Þórs frestað Körfubolti Lagði upp mark í fyrsta leiknum í Póllandi Fótbolti Karólína skoraði stórkostlegt mark og lagði annað upp Fótbolti Fleiri fréttir Hamilton klessti Ferrari-inn á fyrsta degi Arftaki Hamiltons fékk bílprófið sex vikum fyrir fyrstu keppni tímabilsins Mun harðari refsingar á nýju formúlu 1 tímabili Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Sjá meira
Rosberg á ráspól í Rússlandi Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól í tímatökunni á Sochi brautinni í dag. Lewis Hamilton varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. 10. október 2015 12:32
Hulkenberg og Massa fljótastir á blautum æfingum Nico Hulkenberg á Force India var fljótastur á fyrri æfingu dagsins í Rússlandi. Felipe Massa á Williams var fljótastur á seinni æfingu dagsins. 9. október 2015 23:00
Hamilton: Ég var ekkert sérstaklega að leita eftir ráspól Nico Rosberg náði í mikilvægan ráspól í Rússlandi í dag. Titilbaráttan lifir enn ágætu lífi. Hver sagði hvað eftir tímatökuna? 10. október 2015 22:00
Honda klárar uppfærsluskammtana í Rússlandi Fernando Alonso, annar ökumanna McLaren-Honda liðsins mun nota ný uppfærða vél í rússneska kappakstrinum um helgina. Liðsfélagi hans, Jenson Button notar gömlu vélina. 8. október 2015 22:00
Hamilton fyrstur í mark í Rússlandi Lewis Hamilton kom fyrstur í mark á Mercedes bílnum í Rússlandi. Sebastian Vettel varð annar á Ferrari. Sergio Perez kom Force India bílnum í þriðja sæti í mark á ótrúlegan hátt. 11. október 2015 12:38