Nissan Patrol Nismo Finnur Thorlacius skrifar 12. október 2015 15:59 Nissan Patrol Nismo.
Íbúar í Dubai hafa krefjandi þarfir, ekki síst er kemur að bílum og margir bílaframleiðendur hafa einmitt útbúið sumar bílgerðir sínar til að uppfylla þeirra þarfir. Nýjasta dæmi þess er þessi Nissan Patrol Nismo jeppi, en Nismo er deild innan Nissan fyrirtækisins sem breytir hefðbundnum bílgerðum í einskonar ofurbíla. Þessi Patrol Nismo er með 428 hestafla V8 vél, stífari Bilstein fjöðrun, 22 tommu álfelgur og Nismo hefur útbúið bílinn með sportlegri stýringu. Auk þess er margt í ytra útliti bílsins sem aðgreinar hann frá hefðbundnum Patrol, en sá bíll er einnig til sem Infinity QX80 og er mikið lagt í lúxus, en þessi slær honum þó við og á það einnig viðinnanrýmið. Þessi bíll á fyrir vikið að geta keppt við Mercedes Benz GL63 AMG, Range Rover Sport SVR og nýjustu lúxusútgáfu Cadillac Escalade, en þó vantar reyndar talsvert uppá hestaflatölu hans. Bílnum er einungis beint að markaðnum í arabalöndum, en þar seljast vel slíkir ofurjeppar. Hvort hann mun síðar rata á aðra markaði eins og í Evrópu skal ósagt látið að sinni.
Mest lesið Íranir skjóta á Ísrael Erlent Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Innlent Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu Innlent Drengurinn fannst heill á húfi Innlent Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Innlent Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Innlent Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Erlent Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Erlent Framtíð Moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Innlent „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Innlent