Einar: Þessi dómur var út í hött Guðmundur Tómas Sigfússon skrifar 28. september 2015 22:15 Einar klappaði eflaust ekki fyrir dómaraparinu í kvöld. Vísir/Stefán „
Ég er sérstaklega ósáttur af því að við vorum búnir að vinna okkur aftur inn í seinni hálfleiknum, með mark í forystu og síðan klúðrum við þessu í lokin,“ sagði Einar Hólmgeirsson, þjálfari ÍR-inga, eftir grátlegt tap úti í Eyjum í kvöld. „Síðasta sóknin hjá okkur fer heldur illa, ég geri mistök með því að taka leikhléið aðeins of snemma, það er eitthvað sem ég verð að lifa með.“ Einar var afar ósáttur með dómarapar leiksins en dæmdur var ruðningur á Davíð í síðustu sókn ÍR í leiknum. „Þessi dómur er auðvitað út í hött, ég ætla ekki að gagnrýna dómarann en þessi dómur er út í hött. Við erum búnir að spila í eina sekúndu á miðjum vellinum. Hann hleypur framhjá honum og hann hendir sér niður, það sjá það allir í húsinu.“ Davíð Georgsson fékk rautt spjald undir lok leiksins en Bjarni Fritzson hefði með réttu átt að fá það, fyrir að taka boltann upp og hlaupa með hann í burtu eftir að flautaður var ruðningur á Davíð. „Þetta rauða spjald, hann heyrir ekki í flautunni, allt í lagi. Við klúðrum þessu í rauninni sjálfir, sem er mjög sorglegt þegar við vinnum okkur svona vel inn í leikinn og erum komnir yfir. Þetta tap er óverðskuldað finnst mér en ég óska þeim til hamingju með sigurinn.“ ÍR-ingar komu Eyjamönnum í opna skjöldu í byrjun þegar þeir ákváðu að spila með sjö menn í sókn. „Ég verð að hrósa Bjarna fyrir undirbúninginn, hann sat einhverja þrjá daga við tölvuna og var að hugsa hvernig við ætluðum að gera þetta. Við æfðum þetta mjög vel og það heppnaðist í rauninni, en samt ekki því við töpum leiknum.“
Olís-deild karla Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið Sjá meira