Hnéð að angra Jón Arnór: Engar áhyggjur, við bara töppum af því Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. september 2015 15:03 Jón Arnór Stefánsson talar við liðsfélaga sína í dag, Vísir/Valli
Íslenska körfuboltalandsliðið var að mestu án Jóns Arnórs Stefánssonar í seinni hálfleik þegar liðið tapaði með 29 stigum á móti Serbíu í dag í þriðja leik liðsins á Evrópumótinu. „Þetta er bara þetta hné á mér," sagði Jón Arnór Stefánsson um ástæðu þess hvað hann spilaði lítið í seinni hálfleiknum. Jón Arnór spilaði aðeins í þrjár og hálfa mínútu í seinni hálfleik. „Hnéð á mér var búið að vera furðugott í tveimur fyrstu leikjunum og ég hef getað beitt mér alveg hundrað prósent. Eftir hvíldardaginn í gær þá var ég bara verri í dag," sagði Jón Arnór. „Það er alveg fáránlegt að segja það en það tútnaði svo út á mér hnéð. Ég var svo stífur í hnénu og lélegur. Það var líka leiðinlegt hvað leikurinn var snemma og ég gat því ekkert hreyft mig í morgun," sagði Jón Arnór. „Það var engin æfing eða neitt í morgun þannig að ég var extra stífur í hnénu og bólginn. Við þurfum að skoða það núna," segir Jón Arnór en hefur hann áhyggjur af hnénu? „Nei, við bara töppum af því og svo bara áfram gakk. Það er ekkert annað hægt að gera. Leikurinn við Spán er níu annað kvöld og ég hef þá góðan tíma. Við tökum þá æfingu í fyrramálið og mér finnst betra að hreyfa mig aðeins fyrir leikinn," sagði Jón Arnór eftir leikinn.
EM 2015 í Berlín Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Fleiri fréttir Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Sjá meira