Í ákærunni sakar hann Scott um að hafa stolið einu veggverka sinna og meðal annars sett á kjól í haust og vetrarlínu Moschino 2015.
Söngkonan Katy Perry klæddist kjólnum umrædda á Met Gala hátíðinni í New York fyrr á árinu. Með henni var hönnuðurinn Jeremy Scott klæddur í jakkaföt með samskonar prenti, en þau mættu á hátíðina í bíl sem búið var að skreyta með myndinni líka.
Á upprunalegu veggmyndinni er orðið „vandal“ (skemmdarvargur) og stór, ógnvekjandi augu sem Rime segir að sé óeðlilega líkt myndinni sem prentuð er á kjólinn.
Er þetta ekki í fyrsta sinn sem Scott er ákærður fyrir listaverkastuld, en árið 2013 kærði hjólabrettafyrirtækið Santa Cruz Scott fyrir að stela myndum frá þeim sem hann notaði á haust og vetrarlínu sína 2013.
Scott hefur ekki sent frá sér tilkynningu vegna ákærunnar.

Komdu í hóp frábærra áskrifenda hér.
Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.