Lífið

Sveitamenn sprikla: Úlfur Úlfur með nýtt myndband

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Lillablár er allsráðandi í nýja myndbandinu.
Lillablár er allsráðandi í nýja myndbandinu. mynd/skjáskot
Rappsdúettinn Úlfur Úlfur hafa sent frá sér nýtt myndband við lag sitt 100.000.

Í myndbandinu kennir ýmissa grasa, í bókstaflegri merkingu, því lúpínubreiða leikur þar lykilhlutverk sem leikvöllur þeirra Vignis Rafns Hilmarssonar og Snorra Helgasonar sem fara með aðalhlutverkin.

Leikstjórn og framleiðsla var í höndum Úlfsins Arnars Freys Frostasonar en það var unnið í samstarfi við Baldvin Vernharðsson og Sigurð Eyþórsson

Þá sjást þeir félagar einnig að veiðum við Reykjavíkurhöfn og í margvíslegri annarri útitvist milli þess sem þeir vinna spellvirki á hellum og trjádrumbum úti í guðsgrænni náttúrunni.

Myndbandið má sjá hér að neðan en það kemur út í aðdraganda útgáfutónleika sveitarinnar sem fara fram í Gamla bíó þann 23. júlí næstkomandi.

Myndbönd sveitarinnar hafa alla jafna vakið mikla athygli en myndbandið við lagið Tarantúlur hlaut meðal annars Íslensku tónlistarverðlaunin 2014. Þá er því ekki að neita að myndbandið við 100.000 svipar óneitanlega til ábreiðu stórleikarans Zach Galifianakis á slagara rapparans Kanye West, Can't tell Me Nothing, sem kom út árið 2009. Þar bregður leikarinn með óárennilega nafnið sér í hlutverk bónda með allt á hornum sér en það má sjá hér að neðan.

Tengdar fréttir

Á vissum tímapunkti frussurigndi hundaslefi

Igor, JR og Gucci vöktu athygli í nýju tónlistarmyndbandi Úlfs Úlfs við lagið Brennum allt. Þar má sjá þá á rúntinum í blæjubíl með rapparanum Kött Grá Pje.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.